Allar fréttir

05. ágúst 2023
Lífið er ferðalag
„Við vitum öll hversu einfalt það er að setja undir sig haus, bölva roki og rigningu, leggjast svo bara upp í sófa og smella á næsta þátt á Netflix eða hanga í tölvunni. En slen er ekkert til að stæra sig af. Það er mun mikilvægara að finna gleðina í hreyfingu og samveru,“ segir Jóhann Steinar Ingimundarson, formaður UMFÍ.

04. ágúst 2023
Pavel dæmir í körfu
Pavel Ermolinskij, þjálfari Íslandsmeistara Tindstóls í körfuknattleik, var dómari í keppni í körfuknattleik á Unglingalandsmóts UMFÍ á Sauðárkróki í dag. Pavel gekk í raðir Tindastóls í byrjun árs og hefur nú samið um að þjálfa meistaraflokk karla næstu tvö árin.

04. ágúst 2023
Þúsundir skemmta sér í blíðunni á Unglingalandsmóti
„Blússandi gangur er í öllu og gestir Unglingalandsmótsins glaðir,“ segir Auður Inga Þorsteinsdóttir, framkvæmdastjóri UMFÍ. Unglingalandsmót UMFÍ hófst á Sauðárkróki í gær og stendur alla verslunarmannahelgina.

04. ágúst 2023
Velkomin á Unglingalandsmót!
Unglingalandsmót er í mínum huga ein af þeim bestu upplifunum sem við í fjölskyldunni getum hugsað okkur, skrifar Ragnheiður Högnadóttir, formaður móta- og viðburðanefndar UMFÍ.

03. ágúst 2023
Breyttar tímasetningar í blaki og körfubolta
Nú er fyrsti dagur Unglingalandsmóts UMFÍ á Sauðárkróki runninn upp. Mikil aðsókn er í grasblak og körfubolta á Unglingalandsmótinu á Sauðárkróki. Af þeim sökum hefjast leikar í þeim greinum klukkan 8:00 í stað 9:00 á morgun, föstudag.

02. ágúst 2023
Nú geturðu skoðað liðin á Unglingalandsmóti
Þátttakendur á Unglingalandsmóti UMFÍ geta nú skoðað lið og stöðu þeirra á mótinu ásamt því að sjá upplýsingar um tíma- og staðsetningu leikja.

02. ágúst 2023
Rástímar í golfi tilbúnir
Rástímar í golfi á Unglingalandsmóti UMFÍ um verslunarmannahelgina eru klárir. Þeir eru aðgengilegir inni á golfbox fyrir þá sem eru með aðgang að því. Rástímar eru líka undir liðnum golf á vefsíðu UMFÍ.

02. ágúst 2023
Hægt að hlaða 14 rafbíla í einu
„Fólk getur farið á tjaldstæði Unglingalandsmótsins strax í dag og byrjað að hlaða rafbílana sína. Þau þurfa aðeins viðeigandi millistykki og hala niður réttu appi,“ segir Gunnar Þór Gestsson, formaður Ungmennasambands Skagafjarðar (UMSS).

01. ágúst 2023
Búið að loka fyrir skráningu á Unglingalandsmót
Skráning hefur gengið vel á Unglingalandsmót UMFÍ á Sauðárkróki um verslunarmannahelgina. Opið hefur verið fyrir skráningu á mótið í júlí og rann út frestur til þess á miðnætti í gær.