UMFÍ skapar samfélagsleg áhrif með öflugu samstarfi
UMFÍ stendur að fjölbreyttum verkefnum um allt land í samstarfi við stjórnvöld, sveitarfélög, íþrótta- og ungmennafélög, skólasamfélagið og fjölda annarra aðila. Verkefnin eiga það sameiginlegt að efla þátttöku, hreyfingu, lýðheilsu og félagsauð samfélagsins. Með öflugu samstarfi, reynslu og víðtæku tengslaneti vinnur UMFÍ að verkefnum sem skapa raunveruleg áhrif fyrir fólk á öllum aldri.
Verkefni
Skólabúðir á Reykjum
UMFÍ hefur tekið við rekstri Skólabúðanna á Reykjum í Hrútafirði. Í búðunum fá nemendur í 7. bekkjum landsins tækifæri til þess að efla leiðtogahæfni og sjálfsmynd sína og vinna með styrkleika og veikleika til þess að bæta félagsfærni sína.
Samskiptaráðgjafi
Allir eiga rétt á því að geta stundað sitt íþrótta- og æskulýðsstarf í öruggu umhverfi. Samskiptaráðgjafi er óháður aðili sem styður við, leiðbeinir og aðstoðar þá sem hafa upplifað einhverskonar ofbeldi eða einelti í slíku starfi.
Sakavottorð
Samkvæmt Íþróttalögum og Æskulýðslögum er óheimilt að ráða til starfa einstaklinga og/eða sjálfboðaliða sem hlotið hafa dóma gagnvart lögum um ávana- og fíkniefni (nr.65/1974) á síðastliðnum fimm árum eða gagnvart XXII. kafla (kynferðisbrot) almennra hegningarlaga (nr.19/1940). Hér er að finna eyðublöð fyrir íþróttafélög.
Viðbragðsáætlun
Mikilvægt er að allt starfsfólk innan íþróttahreyfingarinnar viti hvernig árángursríkast sé að bregðast við ef upp koma atvik eins og einelti, áreitni og/eða ofbeldi. Hér er að sjá samræmda viðbragðsáætlun fyrir allt íþrótta- og æskulýðsstarf landsins.
Verkfærakista / SIU.is
Verkfærakista íþróttahreyfingarinnar er safn af hagnýtum upplýsingum, sniðmátum og öðru gagnlegu efni sem ætlað er að styðja við starfsemi, skipulag og þróun íþrótta- og ungmennafélagshreyfinguna á Íslandi. Sérstaklega íþróttafélög, þjálfara, stjórnarfólk, starfsfólk og aðra sem koma að starfinu. SIU stendur fyrir samstarf ÍSÍ og UMFÍ.
Samstarfsverkefni UMFÍ og ÍSÍ
UMFÍ og ÍSÍ hafa í gegnum tíðina unnið saman að fjölmörgum verkefnum sem hafa styrkt og eflt íþrótta- og ungmennafélagsstarf um land allt. Á vefsíðunni siu.is er að finna upplýsingar um sameiginleg verkefni sambandanna.
Ánægjuvogin
Í Ánægjuvoginni er að sjá niðurstöður um þróun ánægju hjá ungmennum í efstu bekkjum grunnskóla í íþróttum. Einnig er að sjá niðurstöður um ánægju iðkenda með félagið sitt, þjálfara og aðstöðu. Að auki tengsl íþróttaiðkunar við þætti eins og vímuefnaneyslu, námsárangur, andlega- og líkamlega heilsu, svefn og neyslu orkudrykkja.
Æskulýðsvettvangurinn
Æskulýðsvettvangurinn er samstarfsvettvangur UMFÍ, Bandalags íslenskra skáta, KFUM og KFUK á Íslandi og Slysavarnafélagsins Landsbjargar.
Allir með
Allir með er samstarfsverkefni UMFÍ, ÍSÍ og ÍF. Verkefnið gengur útá að fjölga tækifærum fyrir fötluð börn innan íþróttahreyfingarinnar.
Félagsmálafræðsla
Við hjá UMFÍ höfum uppfært hagnýtar upplýsingar um fundi, hlutverk og ábyrgð stjórnarfólks, framkomu og ræðumennsku. Í stuttu máli ættirðu að finna ýmislegt sem þig getur mögulega vantað til þess að halda fund, þing og/eða bjóða nýtt stjórnarfólk velkomið.
Reyklaust tóbak
Hér er að finna hagnýtt efni frá málþingi um nikótín og áhrifum þess á heilsu ungmenna, mikilvægi lýðheilsuaðgerða, áhrif nikótínpúða á munnhol, nikótínfíkn og meðferð og hvort nikótín sé lyf eða neysluvara.