Fara á efnissvæði

18. - 20. september 2026

Ungt fólk og lýðheilsa

Hvað er Ungt fólk og lýðheilsa?

Ungt fólk og lýðheilsa er vettvangur þar sem ungt fólk kemur saman til að ræða málefni sem skipta það máli, mynda tengsl og taka þátt í lifandi og skapandi dagskrá.

Á ráðstefnunni er lögð áhersla á opið samtal, þátttöku og jákvæða upplifun í gegnum vinnustofur, fyrirlestra og samveru.

Ráðstefnan hefur verið haldin árlega frá 2009 og er styrkt af Erasmus+.

Fyrir hverja er ráðstefnan?

Ráðstefnan er fyrir allt ungt fólk á aldrinum 15–25 ára. Það skiptir ekki máli hvort þú ert í ungmennaráði, íþróttafélagi eða ekki – öll eru velkomin.

Markmiðið er að skapa vettvang fyrir gleði, þátttöku og vöxt. Þátttakendur fá tækifæri til að efla sig, kynnast öðrum og öðlast verkfæri sem nýtast þeim til að hafa áhrif á eigið líf og samfélagið í kringum sig.

Ráðstefnan 2026

Ráðstefnan 2026 fer fram helgina 18. - 20. september í Skólabúðum UMFÍ á Reykjum í Hrútafirði. Yfirskrift ráðstefnunnar er STYRKJUMST. BLÓMSTRUM. TENGJUMST. Áhersla verður lögð á mikilvægi heilbrigðra tengsla, bæði í stafrænum heimi og í raunverulegu lífi, sem lykilþátt í góðri lýðheilsu.

Allt um ráðstefnuna 2026