Skinfaxi er heilbrigðasta tímarit á Íslandi!
Fyrsta tölublað Skinfaxa 2024 er komið út. Blaðið er sprengfullt af sprikli og hugmyndum, fréttum úr íþrótta- og ungmennafélagshreyfingunni og ráðum um það sem virkar. Viltu koma fólki á hreyfingu? Siturðu á haug af gömlum farandbikurum og verðlaunum í fjórða flokki sem þú veist ekki hvað á að gera við? Þú finnur svörin og margt fleira í nýjasta tölublaði Skinfaxa. Blaðið er aðgengilegt í íþróttahúsum og sundlaugum og sent til áskrifenda. Þú getur líka lesið blaðið á umfi.is og öðrum miðlum.
Fjölbreytt efnistök
Á meðal efnis í blaðinu:
- Fá sjokk yfir tölunum – Átakið Allir með
- Kraftur í heilsueflingu eldra fólks
- Landsmótið á Laugarvatni í lit
- Risastórir sigrar hjá iðkendum með fötlun
- Tvö ungmennafélög sameinuð í eitt
- Fólk á öllum aldri spilar ringó á Bíldudal
- Fjölbreytt framboð íþróttastarfs hjá Umf. Reykdæla
- Fjörug í fimleikum
- Borgin lyftir upp lýðheilsustarfi eldri borgara
- Hamar býður upp á líkamsrækt í Hamarsporti
- Verðmæti í heilsueflingu 60+
- Hvetur eldra fólk til að hreyfa sig
- Mikil ásókn í boccia á Landsmóti UMFÍ 50+
- Mikilvæg störf í hreyfingunni
- Skemmtilegri fundir skila sér í metþátttöku
- Halla í Ungmennaráði UMFÍ: Tala saman á blandinavísku
- Ekki missa af viðburðum UMFÍ í sumar
- Vett: Frábært tól fyrir minni félög
- Gamla myndin: Hvítbláinn afhentur í fyrsta sinn
- Borðtennishelgi á Reyðarfirði
Lumarðu á umfjöllunarefni?
Ef þú vilt koma einhverju á framfæri sem á erindi við íþrótta- og ungmennafélagshreyfinguna þá er um að gera og senda okkur línu á umfi@umfi.is
Gerast áskrifandi?
Sendu okkur tölvupóst á netfangið umfi@umfi.is og við græjum málið!