Fara á efnissvæði

Landsmót 50+

Fréttir

Landsmót 50+

05. október 2026

Mikil spenna fyrir landsmótinu á Hellu

„Það er mikil spenna fyrir Landsmóti UMFÍ 50+ á Hellu næsta sumar og gleði í loftinu,“ segir Guðríður Aadnegard, formaður HSK. Undirbúningur mótsins hefur gengið mjög vel og er stefnt á að bjóða upp á 22 keppnisgreinar eins og dráttavélaakstur, pönnukökubakstur og fleira ásamt ringó og öðrum klassískum.

01. júlí 2026

Ringó sló í gegn á Landsmóti UMFÍ 50+

Landsmót UMFÍ 50+ fór frábærlega fram í Hrafnagilshverfi í Eyjafjarðarsveit um helgina. Mjög góð þátttaka var á mótinu en 366 einstaklingar skráðu sig í 791 grein. Töluverð fjölgun hefur verið í ringó í gegnum árin en 16 lið voru skráð til leiks.

01. júlí 2026

Þakkað fyrir að hvetja aðra til þátttöku

Sex einstaklingum var þakkað fyrir virka þátttöku á Landsmóti UMFÍ 50+ í Hrafnagilshverfi um helgina og fyrir að hvetja aðra til að mæta á mótið. Þetta voru þau Flemming Jessen, Eygló Alexandersdóttir, Margrét Björnsdóttir, Karl Lúðvíksson, Steinunn Ingimundardóttir og Þorbergur Þórðarson.

25. júní 2026

„Ég kynntist bestu vinkonum mínum í brennibolta“

Brennibolti nýtur vaxandi vinsælda hjá fólki á miðjum aldri. Keppt verður í brennibolta á Landsmóti UMFÍ 50+ í Eyjafjarðarsveit um helgina. Aníta Arndal í brenniboltaliðinu Fireballs hlakkar til að keppa.

24. júní 2026

Mótaskrá 2026 komin út

Mótaskrá Landsmóts UMFÍ 50+ í Hrafnagilshverfi er komin út. Hana er hægt að nálgast rafrænt hér á umfi.is auk þess sem þátttakendur mótsins fá hana afhenta með mótsgögnum.

16. júní 2026

Ringó í miklum vexti

Þær Margrét Björnsdóttir, formaður og einn stofnenda íþróttafélagsins Glóð, í Kópavogi og Þórdís Guðrún Bjarnadóttir, gjaldkeri félagsins, kíktu við í þjónustumiðstöð UMFÍ í dag með fjölda ringóhringja, sem notaðir verða á Landsmóti UMFÍ 50+ í Hrafnagilshverfi í Eyjafjarðarsveit eftir tæpar tvær vikur. 

15. júní 2026

Lögðu línurnar fyrir landsmót á næsta ári

Mikill hugur er í fólki á Suðurlandi fyrir Landsmóti UMFÍ 50+ þegar það fer fram á Hellu á næsta ári. Framkvæmdanefnd mótsins fundaði í síðustu viku og lagði línurnar. Mótið verður haldið á Hellu dagana 25. - 27. júní árið 2027.

13. maí 2026

Landsmót UMFÍ 50+ á Hellu árið 2027

Héraðssambandið Skarphéðinn (HSK) hefur fengið úthlutað Landsmóti UMFÍ árið 2027 og verður það haldið á Hellu, samkvæmt samþykkt stjórnar UMFÍ. Mótið hefur ekki áður verið haldið á Hellu.

10. maí 2026

„Við erum orðin geysilega spennt fyrir mótinu“

Landsmót UMFÍ 50+ verður haldið í Hrafnagilshverfi, Dalvík og Akureyri síðustu helgina í júlí. Haukur Valtýsson er formaður framkvæmdanefndar mótsins. Hann býst við afar góðri mætingu fólks sem hitti þar gamla mótherja af íþróttavellinum.