Fara á efnissvæði
01. júlí 2026

Ringó sló í gegn á Landsmóti UMFÍ 50+

Landsmót UMFÍ 50+ fór frábærlega fram í Hrafnagilshverfi í Eyjafjarðarsveit um helgina. Mjög góð þátttaka var á mótinu en 366 einstaklingar skráðu sig í 791 grein. Töluverð fjölgun hefur verið í ringó í gegnum árin en 16 lið voru skráð til leiks.

Ljóst er að pokavarp hefur líka slegið í gegn sem keppnisgrein því þátttakendur þar voru 37 talsins.

Mikill fjöldi skráði sig sömuleiðis á matar- og skemmtikvöldið, sem fram fór í mathúsinu Vitanum á Akureyri á laugardagskvöldinu. 

Af sambandsaðilum UMFÍ komu flestir þátttakendur á mótið frá Íþróttabandalagi Akureyrar (ÍBA). Þeir voru 69 talsins eða sem nemur tæpum 19% af þátttakendum mótsins. Heimamenn voru næstflestir undir merkjum Ungmennasambands Eyjafjarðar (UMSE). Þeir voru 43 eða um 12% þátttakenda. 

Fjölmenni mætti sömuleiðis frá öðrum sambandsaðilum á borð við Ungmenna- og íþróttasambandi Fjallabyggðar (UÍF), sem hélt mótið á síðasta ári, Ungmennasambandi Borgarfjarðar (UMSB), Ungmennasambandi Kjalarnesþings (UMSK) og Héraðssambandinu Skarphéðni (HSK) en þaðan koma fastagestir á mótið. 

Afar góð skráning var í margar greinar mótsins. Í ringó voru skráði 86 einstaklingar í 16 liðum, 111 kepptu í boccía í 35 liðum, 103 kepptu í pútti, og 139 skráningar voru í frjálsar íþróttir. Keppendur í frjálsum taka iðulega þátt í fjölmörgum greinum frjálsra íþrótta og því er skráningartalan alla jafna hærri en í öðrum greinum. 

 

Úrslit og alls konar

Upplýsingar og úrslit í öllum greinum má sjá á vefsvæði Landsmóts UMFÍ 50+:

Landsmót UMFÍ 50+ úrslit