Fara á efnissvæði
24. júní 2026

Mótaskrá 2026 komin út

Mótaskrá Landsmóts UMFÍ 50+ í Hrafnagilshverfi er komin út. Hana er hægt að nálgast rafrænt hér á umfi.is auk þess sem þátttakendur mótsins fá hana afhenta með mótsgögnum.

Þetta er skráin sem þátttakendur og gestir mótsins geta haft gagn af að hafa í vasanum og símanum meðan á móti stendur. 

Í mótaskránni er dagskrá Landsmóts UMFÍ 50+, skemmtilegar upplýsingar um allar greinar, rætt við forsvarsfólk UMFÍ, Eyjafjarðarsveitar og Ungmennasambands Eyjafjarðar, myndir frá fyrri mótum og ýmislegt fleira.

Þátttakendur fá prentaða útgáfu mótaskrárinnar afhenta í þjónustumiðstöðvum mótsins í Hrafnagilshverfi og á Akureyri. Miðstöðin opnar í Grunnskólanum í Hrafnagili klukkan 18:00 á morgun, fimmtudag og verður hún opin til klukkan 22:00. Þjónustumiðstöðin opnar svo aftur klukkan 8:00 en verður þá í Íþróttahöllinni á Akureyri þar sem keppni í boccía og ringó fer fara fram.

UMFÍ heldur Landsmót UMFÍ 50+ ásamt Ungmennasambandi Eyjafjarðar (UMSE) og sveitarfélaginu Eyjafjarðarsveit. 

 

Hér er hægt að nálgast allar upplýsingar um mótið. 

Þú getur smellt á myndina hér að neðan og lesið mótaskránna á netinu.