Fara á efnissvæði

Keppnisgreinar

Hjólreiðar

Einkunnir sunnudaginn 4. ágúst kl. 11:00-14:00

Aldurs- og kynjaflokkar

  • Stelpur 11 - 14 ára 
  • Strákar 11 - 14 ára
  • Stelpur 15 - 18 ára
  • Strákar 15 - 18 ára

 

Keppnisfyrirkomulag

Keppendur mæta í Einkunnir sem eru rétt fyrir ofan Kárastaði, ekki síðar en hálftíma fyrir ræsingu og fá öryggisvesti og tímaflögu.

Hringurinn er 1 km. 

Yngri flokkur (11 - 14 ára) hjólar þrjá hringi.
Eldri flokkur (15 - 18 ára) hjólar fimm hringi.

Ræsing

  • Kl. 11:00 Yngri flokkur. Stelpur og strákar
  • Kl. 12:00. Eldri flokkur. Stelpur og strákar

 

Keppnisfyrirkomulag / reglur

  • Keppendur eru á eigin ábyrgð í keppninni.
  • Allir keppendur fá afhent öryggisvesti með númeri og verða að hjóla í því allan tímann með númer vel sýnilegt.
  • Keppendur skulu ávallt sýna ýtrustu varúðar þegar farið er framúr öðrum keppanda. 
  • Allir keppendur eiga að nota reiðhjólahjálm á meðan á keppni stendur.  
  • Reiðhjólið skal hafa fram- og aftur bremsur í lagi auk annars öryggisbúnaðar.
  • Hjóla þarf alla leiðina á sama hjóli. Keppandi má þó skipta um einstaka hluti, ss. dekk, slöngur og gjarðir ef á þarf að halda.
  • Utanaðkomandi aðstoð er ekki leyfð.
  • Öll venjuleg reiðhjól eru leyfileg í keppninni, en gæta skal að því að búnaður þess, s.s. standari, bögglaberi, bretti o.s.frv. séu vel fest, svo að búnaðurinn setji ekki aðra keppendur í hættu. 
  • Hjólið skal drifið af mannafli, en ekki raforku, eða hreyflum.
  • Keppandi má ekki með hegðun sinni stofna öðrum keppendum eða vegfarendum í hættu. Keppendur skulu ávallt sýna af sér íþróttamannslega hegðun.
  • Ef aftasti keppandi er hringaður af fremsta/stu keppenda/um ber honum að víkja við fyrsta örugga tækifæri. 
  • Við brot á ofangreindum reglum má vísa keppanda úr keppni. 

Brautarskoðun verður ekki formleg en brautin verður merkt daginn fyrir keppni.
Þar sem brautin er um útivistarsvæði ber að taka tillit til gangandi við brautarskoðun. 

 

Úrslit

Úrslit birtast HÉR.

Skráðu þig á Unglingalandsmótið HÉR - skráningu lýkur 29. júlí.