Öllum flokkum

21. mars 2023
UMFÍ hættir starfsemi Ungmennabúða á Laugarvatni
Stjórn Ungmennafélags Íslands hefur ákveðið að hætta starfsemi Ungmennabúða UMFÍ á Laugarvatni. Nú vinnur starfsfólk UMFÍ að því að upplýsa skólastjórnendur um allt land um ákvörðunina. UMFÍ eru starfrækt Ungmennabúðir á Laugarvatni frá árinu 2019.

20. mars 2023
Ylva er nýr formaður NordUng
Ylva Sóley Jóhanna Þórsdóttir Planman var á laugardag kjörin formaður norrænu ungmennasamtakanna Nordisk Ungdomsorganisation - NordUng. Hún tekur við af Rene Lauritsen frá Danmörku. Ylva er fyrsta konan í formannsstóli NordUng síðan Anna Ragnheiður Möller var formaður sömu samtaka árin 2002-2012.

13. mars 2023
Gera gott starf enn betra
„Þetta er hæsta upphæð sem við höfum greitt út til aðildarfélaga UMFÍ og nýtist til að bæta hreyfinguna fyrir alla,“ segir Sigurður Óskar Jónsson, formaður Sjóða- og fræðslunefndar, sem jafnframt er stjórn Fræðslu- og verkefnasjóðs UMFÍ. Fljótlega verður opnað fyrir umsóknir í sjóðinn.

10. mars 2023
Guðrún Hildur er nýr sambandsstjóri UMSB
„Það var mjög stressandi að halda sambandsþing í fyrsta sinn. En þetta gekk nú samt fínt,“ segir Bjarney Lárudóttir Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri Ungmennasambands Borgarfjarðar (UMSB) en þing sambandsins fór fram á miðvikudag. Á þinginu tók Guðrún við af Sonju sem sambandsstjóri UMSB.

08. mars 2023
Victor ráðinn rekstrarstjóri UMSK
Victor Ingi Olsen hefur verið ráðinn í starf rekstrarstjóra Ungmennasambands Kjalarnesþings (UMSK) og hefur hann þegar hafið störf. Victor tekur við af Valdimari Gunnarssyni, fyrrverandi framkvæmdastjóra UMSK.

06. mars 2023
Gerir íþróttafélagið mitt gagn?
Það er eðlilegt að spyrja spurninga eins og þessarar endrum og eins. Af hverju erum við annars að þessu, að mæta á völlinn og á æfingar í misgóðu æfingahúsnæði, í kulda og trekki, vinna í sjoppunni á leikjum barna okkar og vina og leggja eitt og annað á okkur fyrir félagið sem við styðjum?

06. mars 2023
Æskulýðsvettvangurinn: Námskeið í samskiptum og siðareglum
Siðareglur eru mikilvægur hlekkur í því að standa vörð um hagsmuni barna og ungmenna sem taka þátt í íþrótta- og æskulýðsstarfi. Æskulýðsvettvangurinn stendur nú fyrir námskeiði í samskiptum fyrir starfsfólk og sjálfboðaliða.

03. mars 2023
Búist við miklum fjölda á Landsmót UMFÍ 50+
Landsmót UMFÍ 50+ verður haldið í Stykkishólmi 23. – 25. júní. Danskir dagar fara fram á sama tíma og því verður búist við gríðarlegri þátttöku og heilmiklu fjöri, að sögn Ómars Braga Stefánssonar, framkvæmdastjóra mótsins.

02. mars 2023
Gunnar J. Helgason: Fékk kók og prins á sínum síðasta aðalfundi
„Þetta gerði ég með trega. En ég er að fara úr stjórn félags sem er í góðum málum og með bjarta framtíð,” segir Gunnar J. Helgason. Hann mætti á sinn síðasta aðalfund hjá Þrótti Vogum í gærkvöldi. Í tilefni af því var boðið upp á kók og prins í boði félagsins eins og árið 1985.