Allar fréttir

08. júní 2024
Áhorfendur átu verðlaunakökurnar
Áhorfendur gengu á lyktina í keppni í pönnukökubakstri á Landsmóti UMFÍ 50+ sem fram fer í Vogum á Vatnsleysuströnd um helgina. Áhorfendur fengu að smakka á pönnukökunum að keppni lokinni.

07. júní 2024
101 árs sýndi línudans á landsmóti
Gunnar Jónsson, þátttakandi í línudansi á Landsmóti UMFÍ 50+ er sönnun þess að hreyfing bætir árum við lífið og gleði við árin. Gunnar byrjaði í líkamsrækt eftir nírætt og er nýorðinn 101 árs.

07. júní 2024
Íþróttahreyfingin á að búa til tækifæri
„Hlutverk UMFÍ og íþróttahreyfingarinnar allrar er að búa til tækifæri, finna stað og stund svo fólk geti notið þess að hreyfa sig,“ segir Jóhann Steinar Ingimundarson, formaður UMFÍ, við setningu Landsmóts UMFÍ 50+ í dag.

07. júní 2024
Rúmlega 200 sóttu um 16 stöðugildi
Vel hefur gengið að ráða í stöður svæðisstöðva ÍSÍ og UMFÍ, að sögn Hönnu Cörlu Jóhannsdóttur. Svæðisstöðvar íþróttahéraðanna eru átta um allt land og eru tvö stöðugildi á hverri stöð.

06. júní 2024
Rástíma og riðlaskrár liggja fyrir
Rástímar, lið og fleiri upplýsingar tengdar Landsmóti UMFÍ 50+ í nokkrum greinum liggja nú fyrir á upplýsingasíðum fyrir viðkomandi greinar.

06. júní 2024
Líf og fjör á landsmóti í Vogum
Einbeiting og gleðin skein úr augum keppenda í boccia, sem var fyrsta greinin sem blásið var til á Landsmóti UMFÍ 50+ í Vogum í dag. Mótið stendur yfir alla helgina. Keppt verður í 20 íþróttagreinum og fjölda opinna greina fyrir 18 ára og eldri.

05. júní 2024
Frestur framlengdur til að sækja um styrki í þágu farsældar barna
Mennta- og barnamálaráðherra hefur framlengt frest til að sækja um styrki frá frá íslenskum félagasamtökum til verkefna sem varða farsæld og samfélagslega virkni. Fresturinn var til 7. júní en er nú til 21. júní næstkomandi.

04. júní 2024
Hægt að kaupa miða á matar- og skemmtikvöld
Nú er heldur betur farið að styttast í Landsmót UMFÍ 50+ í Vogum. Það hefst á fimmtudag og er allt að verað klárt. Enn er hægt að skrá sig á matar- og skemmtikvöldið. Við hvetjum fólk til að gera það í dag fyrir klukkan 18:30.

03. júní 2024
Senn lokar fyrir skráningu liða á landsmót
Opið er fyrir skráningu í greinar á Landsmót UMFÍ 50+ í Vogum til klukkan 16:00 í dag. Fólk getur tekið þátt í fjölmörgum opnum greinum mótsins og enn hægt að bæta við í einstaklingsgreinar.