Ungmennaráð UMFÍ hlaut styrk frá Erasmus+

Ungmennaráð UMFÍ hlaut á dögunum styrk frá Erasmus+ fyrir ungmennaráðstefnuna Ungt fólk og lýðheilsu 2025. Upphafsfundur styrkþega fór fram í dag hjá Rannís þar sem farið var yfir ýmsar hagnýtar upplýsingar. Ísleifur Auðar Jónsson, fulltrúi Ungmennaráðs UMFÍ, sótti fundinn ásamt Ragnheiði Sigurðardóttur, verkefnastjóra UMFÍ.
Undirbúningur er í fullum gangi fyrir ungmennaráðstefnu UMFÍ. Hún heitir Ungt fólk og lýðheilsa og er viðfangsefni hennar félagslegir töfrar. Ráðstefnan fer fram dagana 19. – 21. september á Reykjum í Hrútafirði.
Félagslegir töfrar
Félagslegir töfrar vísa til mikilvægra en ósýnilegra gilda sem myndast í samskiptum og samveru fólks. Töfrarnir móta hugmyndir, hegðun og sjálfsmynd fólks, þeir draga fólk hvert að öðru og skilar því að hópur verður að liði og samfélag að samfélagi.
Markmið ungmennaráðstefnu UMFÍ er að hvetja ungt fólk til þátttöku í félagsstarfi íþrótta- og ungmennafélagshreyfingarinnar á nýjan hátt og fjölbreyttari, semsagt með öðrum hætti en þeim sem felst í því að mæta á hefðbundnar íþróttaæfingar.
Þátttaka í félagsstarfi getur jafnframt falið í sér setu í stjórn deildar eða í stjórn íþróttafélags, þátttöku í fjölbreyttu nefndarstarfi, aðstoð við fjáröflun, dómgæslu og/eða vinnu að einhverju leyti við móta- og viðburðahald. Með öðrum orðum er markmið viðburðarins að efla og viðhalda félagslegum töfrum ungs fólks - efla og styrkja félagslega heilsu þess. Að auki felur viðburðurinn í sér hellings hópefli, líkamlega hreyfingu og afþreyingu. Viðburðurinn tekur því á öllum hliðum lýðheilsu, þ.e. líkamlegri-, andlegri- og félagslegri heilsu.
Síðast en ekki síst fellur ungmennaráðstefnan vel að gildum UMFÍ, sem endurspeglast í ungmennafélagsandanum sem felur í sér að bæta sjálfan sig og samfélagið um leið.
Ungmennaráðstefnan
Ungmennaráðstefnan Ungt fólk og lýðræði leggur áherslu á að efla lýðræðislega þátttöku ungs fólks í leik og starfi. Þar er lögð áhersla á að einstaklingar geti styrkt sjálfsmynd sína og tekið upplýstar ákvarðanir um eigið líf og lífsstíl. Ráðstefnan hefur verið haldin árlega frá árinu 2009 og hefur því fest sig í sessi á meðal mikilvægustu viðburða fyrir ungt fólk á Íslandi.
Styrktaraðili ráðstefnunnar er Erasmus+
Eins og nafnið ber með sér er ráðstefnan fyrir ungt fólk á aldrinum 15 - 30 ára. Engin skylda er að vera í ungmennaráði eða íþróttafélagi. Allt ungt fólk á tilsettum aldri er velkomið! Markmið viðburðarins er gleði og þátttaka. Þátttakendur hljóta ýmis verkfæri og þjálfun til þess að hafa aukin áhrif á sitt eigið líf sem og sitt nærsamfélag.
Þú getur lesið miklu meira um Ungt fólk og lýðheilsu á umfi.is:
