Öllum flokkum
24. apríl 2018
Pláss fyrir fimm lýðháskóla á Íslandi
Miðað við höfðatölu ættu að vera að minnsta kosti fimm lýðháskólar á Íslandi, að mati Auðar Ingu Þorsteinsdóttur, framkvæmdastjóra UMFÍ. Hún var með erindi á ráðstefnunni Hvernig á að búa til skóla úr engu? sem fram fór í Norræna húsinu á mánudag.
20. apríl 2018
Elín Rán hjá UÍA sæmd starfsmerki UMFÍ
Elín Rán Björnsdóttir, fyrrverandi formaður Ungmenna- og íþróttasambands Austurlands (UÍA) var sæmd starfsmerki UMFÍ á þingi UÍA sem fram fór á Borgarfirði eystra á dögunum. UÍA veitti fjórum starfsmerki. Á sama tíma bættist Lyftingafélag Austurlands við sem aðildarfélag UÍA.
18. apríl 2018
„Ég hef aldrei verið hrifinn af svona prjónum“
Guðmundur Gíslason, fyrrverandi starfsmaður UMFÍ, ritstjóri Skinfaxa og íþróttakennari, var á héraðsþingi Héraðssambands Snæfellsness og Hnappadalssýlu (HSH) heiðraður fyrir störf heiðraður með starfsmerki UMFÍ. Framkvæmdastjóri HSH segir þingið hafa tekist afar vel eftir dvala í um tvö ár.
17. apríl 2018
Hvað vilt þú gera? Sendu inn umsögn um aðgerðir
Starfshópur um aðgerðir til að koma í veg fyrir kynferðislega og kynbundna áreitni og ofbeldishegðun óskar eftir tillögum og umsögnum um aðgerðir, bætt vinnulag og jafnvel lagabreytingar sem hægt er að gera til að hindra kynferðislega áreitni og ofbeldishegðun.
16. apríl 2018
Hver vill eignast nýja sænska vini?
Hópur ungs fólks (20-25 manns á aldrinum 17 - 25 ára) frá samtökunum 4H í Svíþjóð er væntanlegur til Íslands í maí og leitar hann eftir því að hitta hóp á svipuðum aldri í Reykjavík laugardaginn 12. maí. Gert er ráð fyrir því að hópurinn verði í Reykjavík allan daginn.
13. apríl 2018
Undrast að ekki eru lýðháskólar á Íslandi
Lisbeth Trinskjær er skólastjóri lýðháskóla í Danmörku. Hún var stödd hér á landi í fyrrahaust ásamt fleiri lýðháskólafrömuðum af Norðurlöndunum og snýr aftur eftir nokkra daga til að halda fyrirlestur um reynsluna af rekstri lýðháskóla á Norðurlöndunum.
12. apríl 2018
Jón Egill er nýr framkvæmdastjóri UDN
„Þetta leggst afar vel í mig enda er starfið fjölbreytt,“ segir Jón Egill Jónsson sem hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Ungmennasambands Dalamanna og Norður-Breiðfirðinga (UDN). Hann tók til starfa rétt eftir miðjan mars og er jafnframt íþrótta- og tómstundafulltrúi Dalabyggðar.
11. apríl 2018
Umsóknarfrestur í Umhverfissjóð er til 15. apríl
UMFÍ minnir á að frestur til að sækja um í Umhverfissjóð UMFÍ rennur út 15. apríl næstkomandi.
10. apríl 2018
Iða Marsibil endurkjörinn formaður
Iða Marsibil Jónsdóttir var endurkjörinn formaður á 39. Héraðsþingi Héraðssambandsins Hrafna-Flóka sem haldið var 4. apríl síðastliðinn í Félagsheimili Patreksfjarðar.