Fara á efnissvæði

Keppnisgreinar

Frjálsar íþróttir

Skallagrímsvöllur föstudaginn 2. ágúst og laugardaginn 3.ágúst.

Tímasetningar

SJÁ TÍMASEÐIL HÉR

Föstudagur 2. ágúst 
kl. 9:00 - 13:00   11-12 ára 
kl. 12:30 - 18:00  13-18 ára 

Laugardagur 3. ágúst 
kl. 9:00  - 13:00   11-12 ára og 15- 18 ára 
kl. 13:00 - 18:00  13-18 ára

Ath tímaseðill kemur hér fljótlega

Keppnisfyrirkomulag, aldurs- og kynjaflokkar

11 ára piltar og stúlkur:
60 m hlaup
600 m hlaup
4x100 m boðhlaup
Langstökk
Hástökk
Kúluvarp
Spjótkast

12 ára piltar og stúlkur
60 m hlaup
600 m hlaup
4x100 m boðhlaup
Langstökk
Hástökk
Kúluvarp
Spjótkast

13 ára piltar og stúlkur
100m hlaup
600 m hlaup
4x100 m boðhlaup
Langstökk
Hástökk
Kúluvarp
Spjótkast
Kringlukast

14 ára piltar og stúlkur
100 m hlaup
800 m hlaup
4x100 m boðhlaup
Langstökk
Hástökk
Kúluvarp
Spjótkast
Kringlukast

15 ára piltar og stúlkur
100 m hlaup
800 m hlaup
4x100 m boðhlaup
Langstökk
Hástökk
Kúluvarp
Spjótkast
Kringlukast

16 - 17 ára piltar og stúlkur
100 m hlaup
800 m hlaup
4x100 m boðhlaup
Langstökk
Hástökk
Kúluvarp
Spjótkast
Kringlukast

18 ára piltar og stúlkur
100 m hlaup
800 m hlaup
4x100 m boðhlaup
Langstökk
Hástökk
Kúluvarp
Spjótkast
Kringlukast

 

Reglur

  • 12 ára og yngri komi í nafnakall 30 mín. fyrir fyrstu grein – þau fylgjast síðan að í gegnum keppnisdaginn.13 ára og eldri mæta einnig í nafnakall 30 mín fyrir keppni. Nafnakalli líkur 2 mín fyrir upphaf keppni.

    Ef keppandi/fulltrúi mætir ekki í nafnakall fellur keppnisréttur niður.
  • Líklega verður skipt upp í 2 keppnishópa eftir stafrófsröð í flokkum 12 ára og yngri.
  • 15, 16, 17, 18 ára keppa öll á sama tíma - ath þyngdir áhalda er ekki sú sama
  • Einstaklingur má keppa í einu boðhlaupi og verður að vera skráður í mótið.
  • Skrá skal boðhlaupsveitir í nafnakall fyrir kl.18:00 á föstudag 
  • Keppendur með eigin áhöld skili þeim inn til keppni fyrir kl 11.00 á föstudag (ath ekki er reiknað með að 12 ára keppendur og yngri komi með eigin áhöld).
  • Keppandi má keppa upp fyrir sig í boðhlaupi ef hann keppir ekki í sínum aldursflokki.
  • Keppandi má keppa upp fyrir sig í aldursflokki ef greinin er ekki í boði í hans aldursflokki.
  • Langstökk: Allir keppendur fá eitt æfingastökk og fjögur stökk mæld.
  • Spjótkast, kringlukast, kúluvarp: Allir keppendur fá eitt æfingakast og fjögur köst mæld.
  • Einungis keppendur í viðkomandi grein mega vera innan vallar á meðan keppni stendur.

    Spretthlaup
  • Í flokkum 12 ára og yngri gilda tímar til úrslita – engin úrslitahlaup.
  • Raðað er í riðla, 13 ára og eldri, eftir árangri.
  • Átta bestu tímarnir vinna sér keppnisrétt til úrslitahlaups.
  • Ef keppendur eru 8 eða færri í flokki fellur undanúrslitahlaup niður og verður hlaupið til úrslita samkvæmt tímaseðli.
  • Í 600 m, 800 m og boðhlaupum ráða tímar úrslitum.

    Langstökksreglur
  • Fjögur stökk mæld í öllum flokkum. Eitt æfingastökk áður en keppni hefst.
  • 11 ára 1 m. svæði, 12 og 13 ára 50 cm. svæði.
  • Svæðið er merkt með límbandi, það er ekki leyfilegt að stíga utan svæðis né á línurnar
  • Mælt frá tá á svæði, ef stokkið er aftan við svæði er mælt frá enda svæðis (lengra frá gryfju).
  • Mælt frá uppstökksstað að aftasta marki lendingarstaðar þó það sé á ská.
  • Hafa keilu hjá upphafi og enda svæðis.
  • 14 ára og eldri stökkva á planka
  • Stökk ekki gilt fyrr en stökkvari er kominn uppúr gryfju.
  • Stökkvari má ekki ganga aftur úr gryfjunni, verður að fara út úr henni að framan
  • 14 ára og eldri stökkva af planka
  • Mælt frá planka að aftasta marki lendingarstaðar, ekki á ská.
  • Stökk ekki gilt fyrr en stökkvari er kominn uppúr gryfju.
  • Má ekki ganga aftur úr gryfjunni, verður að fara út úr henni fyrir framan lendingarstað.
  • Má ekki snerta gryfjukant eða svæði utan gryfju í lendingu, t.d.
  • Ekki gilt ef stökkvari drífur ekki út í gryfju!
  • Alltaf mælt frá aftasta marki sama eftir hvaða líkamshluta það er.
  • Mælt bara í heilum cm. og alltaf lækkað niður.


Hástökksreglur

  • Stokkið er samkvæmt hefðbundnum reglum FRÍ, þrjár tilraunir við hverja hæð.
  • Séu keppendur fleiri en 25 í hástökki mun hópnum verða skipt upp eftir stafrófsröð.

Byrjunarhæðir og hækkanir:

  • 11 ára bæði kyn: 0,90m , 1,00 m, 1,07 m,  1,14 m, 1,19 m, 1,24 m, 1,27 m, +3cm
  • 12 ára bæði kyn: 0,95m, 1,05 m, 1,12 m, 1,19 m, 1,24 m, 1,29 m, 1,34 m, 1,39 m, +3cm.
  • 13 ára stúlkur: 1,10 m, 1,20 m, 1,27 m, 1,34 m, 1,39 m, 1,44m , 1,49 m, 1,52 m, +3cm.
  • 13 ára piltar: 1,15 m, 1,25 m, 1,32 m, 1,39 m, 1,44 m, 1,49 m, 1,54 m, 1,57 m, + 3cm.
  • 14 ára stúlkur: 1,15 m, 1,25 m, 1,32 m, 1,39 m, 1,44 m, 1,49 m, 1,54 m, 1,57 m, +3cm.
  • 14 ára piltar: 1,20 m, 1,30 m,  1,37 m, 1,44 m, 1,49 m, 1,54 m, 1,59 m, 1,64 m, 1,67 m, +3cm.
  • 15 ára stúlkur: 1,25 m, 1,35 m, 1,42 m, 1,47 m, 1, 52 m, 1,57 m, 1,60 m, +3cm.
  • 15 ára piltar: 1,30 m, 1,40 m, 1,47 m, 1,52 m, 1,57 m, 1,62 m, 1,65 m, 1,68, +3cm.
  • 16-18 ára stúlkur: 1,30 m, 1,40 m, 1,47 m, 1,52 m, 1,57 m, 1,62 m, 1,65 m, +3cm.
  • 16-18 ára piltar: 1,40 m, 1,50 m, 1,57 m, 1,64 m, 1,69 m, 1,74 m, +3cm. 

Spretthlaup

  • Keppt er samkvæmt hefðbundnum reglum FRÍ.
  • Keppt verður í undanrásum í öllum spretthlaupum. Átta bestu tímar komast í úrslit.
  • Ef keppendur í undanrásum eru fleiri en 32 þá verður keppt í A og B úrslitum, 16 bestu tímarnir fara í úrslit, keppandi í B úrslitum getur unnið hlaupið.
  • Ef keppendur eru 8 eða færri í flokki þá verður hlaupið beint úrslitahlaup.
  • 11 ára bæði kyn 60 m.
  • 12 ára bæði kyn 60 m.
  • 13 ára og eldri bæði kyn hlaupa 100m.

    600m hlaup
  • Keppt er samkvæmt hefðbundnum reglum FRÍ.
  • Tímar gilda hjá öllum aldurshópum, engin úrslitahlaup.
  • Raðað tilviljunarkennt (e random) í riðla.
  • 11, 12 og 13 ára bæði kyn 600 m.

    800m hlaup
  • Keppt er samkvæmt hefðbundnum reglum FRÍ.
  • Tímar gilda hjá öllum aldurshópum, engin úrslitahlaup.
  • 14, 15, 16-18 ára bæði kyn 800 m.

    4x100m boðhlaup
  • Keppt er samkvæmt hefðbundnum reglum FRÍ.
  • Skráning í boðhlaup skal berast í nafnakall fyrir kl 18.00 á föstudeginum.
  • Raðað tilviljanakennt (e. random) í riðla.
  • 11, 12, 13, 14, 15, 16-18 ára bæði kyn 4x100 m. 

    Kúluvarp
  • Keppt er samkvæmt hefðbundnum reglum FRÍ.
  • 11 ára bæði kyn 2 kg. kúla
  • 12 til 13 ára piltar 3 kg. kúla
  • 12 til 13 ára stúlkur 2 kg. kúla
  • 14 til 15 ára piltar 4 kg. kúla
  • 14 til 15 ára stúlkur 3 kg. kúla
  • 16 til 17 ára piltar 5 kg. kúla
  • 16 til 17 ára stúlkur 3 kg. kúla
  • 18 ára piltar 6 kg. kúla
  • 18 ára stúlkur 4 kg. kúla

    Spjótkast
  • Keppt er samkvæmt hefðbundnum reglum FRÍ.
  • 11 til 13 ára bæði kynin 400 gr spjót
  • 14 til 15 ára piltar 600 gr spjót
  • 14 til 15 ára stúlkur 400 gr spjót
  • 16 til 17 ára piltar 700 gr spjót
  • 16 til 17 ára stúlkur 500 gr spjót
  • 18 ára piltar 800 gr spjót
  • 18 ára stúlkur 600 gr spjót

    Kringlukast
  • Keppt er samkvæmt hefðbundnum reglum FRÍ.
  • 13 ára piltar 600 g kringla
  • 13 ára stúlkur 600 g kringla
  • 14 ára piltar 1,0 kg kringla
  • 14 ára stúlkur 600 g kringla
  • 15 ára piltar 1,0 kg kringla
  • 15 ára stúlkur 600 gr kringla
  • 16 til 17 ára piltar 1,5 kg kringla
  • 16 til 17 ára stúlkur 1 kg kringla
  • 18 ára piltar 1,75 kg kringla
  • 18 ára stúlkur 1 kg kringla

Úrslit

Úrslit birtast HÉR.

Skráðu þig á Unglingalandsmótið HÉR - skráningu lýkur 29. júlí.