Fara á efnissvæði
02. febrúar 2026

Við erum öll fyrirliðar ýtt úr vör í Úlfarsárdal

„Það er gríðarlega sársaukafullt þegar barn verður fyrir einelti. Áhrifin eru svo slæm og geta eyðilagt svo margt. Þess vegna er mikilvægt að öll félögin, þjálfarar, foreldrar og kennarar, vinni saman gegn því,“ segir Carine N´Koué, framkvæmdastjóri Styrktarsjóðs barna hjá UEFA (UEFA Foundation for Children). Hún hélt ávarp þegar verkefninu Leiðtogaþjálfun var ýtt úr vör í íþróttahúsi Fram á föstudag í Úlfarsárdal.

Þetta er þróunarverkefni UMFÍ, KSÍ og UEFA (Knattspyrnusambands Evrópu) sem fyrirtækið KVAN vinnur við í samvinnu við íþróttafélagið Fram, Dalsskóla, Ingunnarskóla og Sæmundarskóla. 

Verkefnið heitir: Við erum öll fyrirliðar og fékk það styrk frá UEFA Foundation for Children. Styrkþeginn er UMFÍ og höfundur efnisins er Vanda Sigurgeirsdóttir. 

Verkefnið byggir á þeirri hugmyndafræði að öll sem vilja geti tileinkað sér leiðtogahæfni og leiðtogahegðun og vinna gegn neikvæðri hegðun. 

Með verkefninu fylgja handbækur fyrir kennara, starfsfólk skóla og nemendur.

Óskar Örn Guðbrandsson hjá góðgerðarfélaginu Gleðistjarnan, hélt líka stutt ávarp en fyrirliðabönd, sem börn nota í verkefninu, eru keypt til stuðnings Gleðistjörnunnar. Góðgerðarfélagið var stofnað til minningar um Þuríði Örnu Óskarsdóttur, sem lést árið 2023 og var að sögn Óskars mikil gleðistjarna þrátt fyrir að hafa glímt við erfið veikindi nær allt sitt líf. 

Setningarhátíðin var lífleg og skemmtileg. Um 230 nemendur úr 5. og 6. bekk Dalsskóla, Ingunnarskóla og Sæmundarskóla mættu á opnunarhátíðina ásamt kennurum og þjálfurum Fram, formanni KSÍ og fleirum. Carine og Hakan Sjöstrand voru fulltrúar UEFA á hátíðinni. Boðið var upp á heilmikið húllumhæ og pylsuveislu.

 

Hér má sjá nokkrar myndir frá viðburðinum.