Fara á efnissvæði
13. febrúar 2026

Verdensholdet með sýningu í Garðabæ

Danski sýningarhópurinn Verdensholdet verður með stórsýningu í íþróttahúsinu Ásgarði föstudaginn 13. mars. Sýningin hefst klukkan 18:00. Miðasala á þennan einstaka viðburð hefst miðvikudaginn 25. febrúar næstkomandi. Enginn vill missa af sýningum þessa frábæra hóps.

Nú styttist í að sýningarhópurinn Verdensholdet á vegum DGI komi til Íslands. Þetta er hópur á heimsmælikvarða sem ferðast um allan heiminn og hreyfir við honum. Markmiðið með heimsókninni er að veita innblástur, miðla þekkingu og kynnast mismunandi menningu ekki aðeins með sýningum heldur líka með vinnustofum, æfingum og fræðslu. Hópurinn hefur verið á heimsreisu frá því í fyrra og kemur hingað frá Ameríku. Þar á undan var hópurinn í Ástralíu.

Hópurinn er hér á landi á vegum UMFÍ í samvinnu við Fimleikasamband Íslands.

Verdensholdet, eins og hópurinn heitir á dönsku, er mjög eftirsóttur sýningarhópur og sækjast margir um að komast í hann. Valið er í hópinn annað hvert ár og þarf að velja í hvert sinn úr stórum hópi umsækjenda.

Hópurinn sem kemur hingað til lands samanstendur af 28 einstaklingum (14 konum og 14 körlum) sem munu dvelja hér á landi dagana 4.– 27. mars.

Meirihluta dvalarinnar mun hópurinn ferðast um landið (4.–18. mars) og dvelja á hverjum stað í nokkrar nætur. Þar verða haldnar sýningar og vinnustofur fyrir iðkendur og þjálfara ásamt skólum sem hafa áhuga.

Verdensholdet heyrir undir DGI (Danmarks Gymnastik og Idrætsforeninger), sem eru eins konar systursamtök UMFÍ í Danmörku. Formaður og framkvæmdastjóri DGI koma hingað til lands stuttlega til að sjá sýningu hópsins og fræðast um íþróttahreyfinguna hér á landi.  

 

Enn meira um Verdensholdet

Þetta er fólkið í sýningarhópnum