Fara á efnissvæði
01. júní 2025

Vel mætt á þing ÍBH

Hrafnkell Marinósson var endurkjörinn sem formaður Íþróttabandalags Hafnarfjarðar (ÍBH) næstu tvö árin á 54. þingi bandalagsins, sem haldið var á þriðjudag. Þingið var haldið í samkomusal Knattspyrnufélagsins Hauka á Ásvöllum. 76 fulltrúar frá aðildarfélögum ÍBH voru skráðir á þingið ásamt gestum. 57 fulltrúar tóku þátt í atkvæðagreiðslum.

Hallbera Eiríksdóttir, sem sæti á í stjórn UMFÍ, var fulltrúi UMFÍ á þinginu en Þórey Edda Elísdóttir frá ÍSÍ. Hallbera flutti ávarp á þinginu og fjallaði þar um ýmsar áskoranir í íþróttahreyfingunni og þá vinnu sem unnið hefur verið að til að mæta þeim. Stærsta verkefnið í því ferli er stofnun svæðisskrifstofa íþróttahéraðanna um allt land.

Þórey Edda flutti jafnframt ávarp og það gerði líka Valdimar Víðisson, bæjarstjóri í Hafnarfirði.

Kristín Thoroddsen, formaður fræðsluráðs Hafnarfjarðarbæjar, kynnti hugmyndir um íþrótta- og tómstundaklasa í Hamranesi fyrir þingfulltrúum og gestum.

Eftirtalin voru kosin í stjórn ÍBH: Anna Lilja Sigurðardóttir frá Badmintonfélagi Hafnarfjarðar, Arnfríður Kristín Arnardóttir frá Brettafélagi Hafnarfjarðar, Fríða Kristín Jóhannesdóttir frá Sundfélagi Hafnarfjarðar, Hildur Vilhelmsdóttir frá Fimleikafélaginu Björk, Magnús Gunnarsson frá Knattspyrnufélaginu Haukum, Már Sveinbjörnsson frá Golfklúbbnum Keili, Ragnar Hilmarsson frá Siglingafélaginu Hafliða og Viðar Halldórsson frá Fimleikafélagi Hafnarfjarðar.

Aðalbjörg Óladóttir varaformaður fráfarandi stjórnar gaf ekki kost á sér áfram. Kjörnir skoðunarmenn ársreikninga til næstu tveggja ára voru Kristinn Guðlaugsson og Ingimar Haraldsson.

Veittar voru heiðursviðurkenningar til einstaklinga í íþróttum og fyrir störf sín fyrir íþróttahreyfinguna í Hafnarfirði.

Fleiri upplýsingar um þingið má finna á heimasíðu ÍBH