Veðmál barna - hættulegur leikur sem hægt er að stöðva

Á undanförnum árum hafa æ fleiri börn veðjað á íþróttakappleiki á veðmálasíðum. Veðmálastarfsemi barna hefur aukist með tilkomu netspilasíðna sem líkjast tölvuleikjum og hylja alvarlegan eðli fjárhættuspila. Rannsóknir sýna að slík kynni auka líkur á fíkn og félagsvanda. Tölur frá Íslandsbanka sýna að velta barna í veðmálum fimmfaldaðist á milli 2023–2024, en bankinn brást við með því að loka á viðskipti barna við veðmálasíður.
Ef ekkert hefði verið gert, hefðu íslensk börn getað tapað allt að 800 milljónum króna árið 2025. Málið sýnir að einfaldar aðgerðir virka og kalla eftir því að stjórnvöld framfylgi lögum og loki á ólöglega starfsemi almennt.
Jóhann Steinar Ingimundarson, formaður UMFÍ, skrifaði grein um málið sem visir.is birti í dag.
Greinin í heild sinni
Á síðustu árum hefur veðmálastarfsemi barna tekið á sig nýja og hættulega mynd. Internetið býður upp á óheftan aðgang að fjölmörgum fjárhættuspilasíðum sem auglýsa sig eins og tölvuleiki, með litríku viðmóti, stigakerfum og bónusum sem margfaldast líkt og í spilum. Þetta er meðvituð aðferð, sérstaklega gerð til þess að toga ungmenni inn í heim veðmála þar sem raunverulegir peningar umbreytast í sýndarmynt sem gerir það auðveldara að gleyma hvað er í húfi.
Börn veðja fyrir hundruð milljóna króna
Á málþingi íþróttahreyfingarinnar, sem haldið var í vor, kom fram hjá fulltrúa Íslandsbanka að velta á kortum íslenskra barna á veðmálasíðum fimmfaldaðist hjá þeim á milli áranna 2023-2024. Í því ljósi ákvað bankinn að bregðast við með því að loka á viðskipti barna við veðmálasíður og fjárhættuspil. Þetta var einföld en árangursrík aðgerð.
Ef bankinn hefði setið aðgerðalaus hjá, mætti gera ráð fyrir því að árið 2025 hefðu börn undir 18 ára verið að stunda veðmál fyrir um 250 milljónir króna hjá þessum eina banka. Að teknu tilliti til markaðshlutdeildar má leiða út að heildarfjárhæðin hefði getað orðið 750–800 milljónir íslenskra króna. Þessar tölur eru sláandi, ekki síst í ljósi þess að rannsóknir sýna að snemmbúin kynni barna af fjárhættuspilum auka verulega líkur á fíkn, þunglyndi og félagslegum vandamálum.
Það er hægt að bregðast við
Þetta sýnir að þegar viljinn er fyrir hendi er hægt að grípa til raunverulegra aðgerða gegn ólöglegum veðmálum. Það er þvert á það sem margir hafa haldið fram: Að „ekki sé hægt að stöðva ólöglega starfsemi á netinu.“ Dæmið sýnir að með markvissum inngripum er alveg hægt að loka á rásir sem annars væru notaðar af börnum.
Auðvitað er þetta aðeins eitt skref. Netið er alþjóðlegt og á hverjum degi spretta upp nýjar síður sem sniðganga reglur. En þetta skref virkaði. Stóra spurningin sem eftir stendur er: Ef hægt er að loka á veðmál barna með tiltölulega einföldum hætti, hvers vegna er þá ekki gripið til samskonar aðgerða gegn ólöglegri veðmála- og fjárhættuspilastarfsemi almennt?
Stjórnvöld eiga að framfylgja lögum
Fjárhættuspil eru nefnilega ekki bara skaðleg þegar börn eiga í hlut, heldur líka fyrir fullorðið fólk. Það er eitt að geta tekið þátt í getraunaleikjum þar sem takmarkanir eru settar í þágu velferðar þátttakanda. Rannsóknir hafa sýnt að slík verðmál séu ekki ávanabindandi. Aftur á móti er ótakmarkað aðgengi að íþróttaveðmálum og fjárhættuspilum, m.a. í svokölluðum "Online Casino", verulega ávanabindandi. Það er þessi veðmálastarfsemi sem veldur fjölda fólks fjárhagsvanda, kvíða, þunglyndi og fjölskylduerfiðleikum.
Um veðmálastarfsemi gilda sérstök lög og reglur á Íslandi. Með þeim var tekin ákvörðun um að takmarka aðgengi og útbreiðslu slíkrar starfsemi og um leið er kveðið á um eftirlit sem slík starfsemi lýtur. Ólöglegar veðmálasíður eru sérlega varasamar þar sem þær lúta engri ábyrgð eða eftirliti eins og gildir um þá aðila sem starfsleyfi hafa hér á landi samkvæmt lögum. Þess vegna er mikilvægt að íslenskum lögum sé fylgt eftir og að lokað verði á allar ólöglegar veðmálasíður á Íslandi, ekki aðeins þær sem beinast að börnum.
Sérstaklega er þó mikilvægt þegar börn eiga í hlut að samfélagið bregðist hratt og ákveðið við. Því hvet ég þær fjármálastofnanir sem ekki hafa gripið til framangreindra aðgerða að huga að því strax. Jafnframt ættu stjórnvöld og eftirlitsaðilar að taka höndum saman og framfylgja þeim samfélagssáttmála sem fram kemur í lögum og loka á ólöglega starfsemi.
Höfundur er formaður UMFÍ.