Snýst um að breyta viðhorfi þjóðar
„Framtíðarsýn okkar er sú að það þyki eðlilegt að íþróttafélög bjóði upp á æfingar fyrir fötluð börn eins og ófötluð. Þangað erum við að stefna,“ segir Valdimar Gunnarsson, verkefnastjóri verkefnisins Allir með. Hann var á meðal fjölmargra frummælenda á fjölmennu málþingi um verkefnið. Málþingið hét: Allir með: Ferðin hingað og ferðalagið framundan.
Á málþinginu verður fjallað um stöðu fatlaðra barna í íþróttum, rannsóknir, reynslu barna, foreldra og íþróttafélaga og þau verkefni sem nú eru í gangi. Á málþinginu voru 18 stutt erindi og pallborð um íþróttir iðkenda með fötlun.
Allir með er samstarfsverkefni íþróttahreyfingarinnar og þriggja ráðuneyta sem hafa stutt við það síðastliðin þrjú ár og ætla að gera það í þrjú ár til viðbótar.
Mikið hefur áunnist
Valdimar sagði margt hafa áunnist á þeim rétt rúmu þremur árum sem liðin eru síðan verkefninu var ýtt úr vör. Markmið mið þess hefur frá upphafi verið þríþætt: að fjölga tækifærum fyrir börn með fötlun í íþróttum, að börn með fötlun fái tækifæri til að æfa íþróttir með sínu hverfisfélagi og geti byrjað að æfa á sama aldri og ófötluð börn.
Ekki lágu fyrir greinagóðar upplýsingar um fjölda fatlaðra barna á Íslandi. En leiðin að upplýsingunum var þyrnum stráð.
„Við áttuðum okkur fljótt á því að það var vonlaust að finna upplýsingar um það hvar fötluðu börnin væru. Persónuvernd sagði ekki heimilt að veita þær upplýsingar. Við urðum því að fara krókaleiðir til að geta áttað okkur á því hvað þetta er stór hópur,“ sagði Valdimar og lýsti því næst að niðurstaðan væri sú að á Íslandi væru um 3.000 börn með fötlun á aldrinum 6–16 ára. Það væri varlega áætlað en miðað við þá tölu væru aðeins 4% barna á þessum aldri í skipulögðu íþróttastarfi.
Valdimar benti á að verkefnið gangi að stórum hluta út á að breyta viðhorfum. Það geri enginn einn.
„Ef við ætlum okkur að gera þetta þá þarf allt samfélagið að taka þátt,“ sagði Valdimar og bætti við að margir hafi verið kallaðir til aðstoðar og mikið gert til að stækka hópinn, svo sem hafi verið unnið mikið starf með svæðisfulltrúum íþróttahéraðanna, íþróttafélögum og fjölmiðlum og mikill stuðningur fengist fyrir verkefnið með Hvatasjóði íþróttahreyfingarinnar.
„Við gerðum þetta í gegnum hefðbundin íþróttafélög um allt land, fórum hringinn í kringum landið, funduðum með bæjar- og sveitarfélögum og kynntum verkefnið. Við höfum breytt viðhorfum. Kannski ekki alls staðar, en á mjög mörgum stöðum,“ sagði hann.
Hér má sjá fleiri myndir frá málþinginu.