Segja nauðsynlegt að ÍRB geti ráðið starfsmann

„Við erum með sterka stjórn skipaða lykilfólki úr stærstu félögunum. En við komumst engu að síður ekki yfir nema brot af því sem við eigum að gera,“ segir Rúnar V. Arnarson, formaður Íþróttabandalags Reykjanesbæjar (ÍRB). Á þingi bandalagsins í vikunni var ályktað um nauðsyn þess að sveitarfélagið hækki þjálfarastyrki og geri bandalaginu kleift að ráða starfsmann og opna skrifstofu til að gera því kleift að sinna því sem bandalagið á að sinna.
Rúnar tekur auk þess fram í ársskýrslu ÍRB og skrifar þar að mikilvægt sé fyrir stórt bæjarfélag eins og Reykjanesbæ að hafa öflugt Íþróttabandalag sem geti sinnt þeim málaflokkum sem því ber. Því er ekki til að dreifa í dag.
„Það er langt frá því að ÍRB geti veitt þá þjónustu og rekið þá starfsemi sem því ber að veita eins og er í öðrum stórum bæjarfélögum. Starfsemin hefur stóraukist og lendir á sjálfboðaliðum að sinna því sem þeir komast yfir. Það er ekki orðið boðlegt lengur. Því leggjum við enn og aftur áherslu á það að ÍRB opni skrifstofu og ráði framkvæmdastjóra með stuðningi Reykjanesbæjar. Á árinu opnaði starfsstöð á vegum ÍSÍ og UMFÍ hér á Suðurnesjum sem hefur sinnt ýmsum verkefnum fyrir íþróttahreyfinguna hér. Þau hafa staðið sig vel og eru að vinna af heilindum fyrir okkur,“ skrifar Rúnar í ársskýrslunni.
Rúnar segir þingið hafa verið gott og árangursríkt þing. Engin stór mál eða lagabreytingar hafi legið fyrir. Dagskráin var almenn og mætingin góð, þar sem rúmlega 70 fulltrúar voru skráðir og tæplega 50 mættu. Fulltrúar frá ÍSÍ og UMFÍ voru einnig viðstaddir, þar á meðal Rakel Másdóttir frá UMFÍ, sem flutti ávarp.
Stjórn ÍRB var endurkjörin og Ólafur Eyjólfsson, fyrrverandi formaður Njarðvíkur, var sæmdur Gullmerki ÍSÍ.
Eins og fyrr sagði lagði Rúnar sérstaka áherslu á eitt brýnt mál sem hefur verið í vinnslu síðastliðin þrjú ár: Að opna skrifstofu fyrir ÍRB og ráða framkvæmdastjóra. Þrátt fyrir að málið hafi komið inn á fjárhagsáætlun bæjarins áður hafi það ævinlega verið skorið niður á lokametrunum. Nú liggi fyrir vilyrði um að þetta verði gert á næsta fjárhagsári.


