Fara á efnissvæði
27. febrúar 2026

Samtal um íþróttir

Raddir ungs fólks er samtal um þátttöku í samfélaginu, upplifun í íþrótta- og æskulýðsstarfi og leiðir til framtíðar við forystufólk sveitarfélaga og íþróttahreyfingarinnar. Fundirnir eru samstarfsverkefni ÍSÍ, UMFÍ, Svæðisstöðva íþróttahéraða og Ungmennaráðs UMFÍ og fara fram um allt land vorið 2026.  

Markmið samtalsins er að efla lýðræðislega þátttöku ungs fólks á aldrinum 15 –25 ára og skapa vettvang til að koma sjónarmiðum á framfæri í samtali á jafningjagrundvelli við forsvarsfólk sveitarfélaga og íþróttahreyfingarinnar. 

Ólafur Stefánsson, fyrrum landsliðsfyrirliði í handknattleik, heimspekingur og meistaranemi í íþróttasálfræði, stýrir fundunum í samstarfi við Ungmennaráð UMFÍ og svæðisfulltrúa íþróttahéraða á hverjum stað. 

Allar niðurstöður fundanna verða nýttar í heildstæðri stefnumótun íþróttahreyfingarinnar, sem nú stendur yfir. Verkefnið er styrkt af Erasmus+ og byggir á þeirri sýn að aðstæður og áskoranir ungs fólks eru ólíkar eftir landshlutum. 

Með því að halda fundi á átta stöðum um allt land er leitast við að umræðan endurspegli raunverulegar þarfir á hverjum stað. 

Fyrsti fundurinn fer fram í Menntaskólanum á Egilsstöðum föstudaginn 6. mars á milli klukkan 16:00 - 18:00.

 

Hægt er að skrá sig á þá viðburði sem fram undan eru hér að neðan.

 

Austurland

Staðsetning: Menntaskólinn á Egilsstöðum
Tímasetning: 6. mars, 16:00 – 18:00
Smelltu hér til að skrá þig á fundinn
 

Norðurland vestra

Staðsetning: Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra
Tímasetning: 23. mars, 13:00 – 15:00
Smelltu hér til að skrá þig á fundinn


Norðurland eystra

Staðsetning: Íþróttahöllin á Akureyri / önnur hæð
Tímasetning: 24. mars, 12:00 – 14:00
Smelltu hér til að skrá þig á fundinn

 

Vestfirðir

Staðsetning: Allar nánari upplýsingar koma innan tíðar
Tímasetning: 11. apríl

 

Við uppfærum upplýsingarnar eftir því sem nær dregur.