Fara á efnissvæði
10. október 2025

Sambandsþing UMFÍ sett í dag

Sambandsþing UMFÍ hefst í dag í Stykkishólmi og stendur þar yfir um helgina. Þingið er æðsta vald í málefnum UMFÍ og er það haldið annað hvert ár. Þingið nú er á margan hátt sögulegt. Eftir að Íþróttabandalag Vestmannaeyja (ÍBV) varð sambandsaðili UMFÍ nú í vor eru fulltrúar frá öllum íþróttahéruðum landsins á þinginu í fyrsta sinn.

UMFÍ hefur stækkað mikið í gegnum árin. Það birtist í fleiri tillögum fyrir þinginu en áður hefur sést. Þá birtist fjölgun í UMFÍ í fjölda gesta við setningu sambandsþingsins á Fosshóteli í Stykkishólmi síðdegis í dag. Reiknað er með 160 manns við setninguna, þingfulltrúum og öðrum gestum. 

Margt verður fjallað um á þinginu. Meðal annars verður stjórnarkjör. Jóhann Steinar Ingimundarson, formaður UMFÍ, var einn í framboði til formanns og verður hann því sjálfkjörinn. 

 

Kosið í stjórn

Ljóst er að nokkur endurnýjun verður í stjórninni því ellefu eru í framboði til setu í stjórn og enn sem komið tveir í framboði til varastjórnar. Að loknu kjöri til stjórnar geta þau sem ekki ná kjöri í stjórn tekið ákvörðun um að bjóða sig fram til setu í varastjórn. 

Stjórn UMFÍ er skipuð sjö einstaklingum: Formanni, varaformanni, gjaldkera, ritara og þrem meðstjórnendum.

Varastjórn er skipuð fjórum fulltrúum og ræður atkvæðafjöldi þeirra í kosningu röð þeirra.  
Frambjóðendur munu kynna sig á Sambandsþingi UMFÍ og fá til þess þrjár mínútur hver.

Gengið verður til kosninga síðdegis á laugardag, 11. október næstkomandi. 

 

Í framboði eru eftirfarandi:  

Til formanns UMFÍ:
Jóhann Steinar Ingimundarson - Ungmennasambandi Kjalarnesþings (UMSK).
 
Til aðalstjórnar UMFÍ:

  • Birgir Már Bragason – Íþróttabandalag Reykjanesbæjar (ÍRB).
  • Guðmundur Sigurbergsson – Ungmennasamband Kjalarnesþings (UMSK).
  • Guðný Stefanía Stefánsdóttir – Héraðssamband Vestfjarða (HSV).
  • Gunnar Gunnarsson – Ungmenna- og íþróttasamband Austurlands (UÍA).
  • Halla Margrét Jónsdóttir – Íþróttabandalag Akraness (ÍA).
  • Helgi Sigurður Haraldsson – Héraðssambandið Skarphéðinn (HSK).
  • Margrét Sif Hafsteinsdóttir – Íþróttabandalag Reykjavíkur (ÍBR).
  • Ragnheiður Högnadóttir – Ungmennasamband Vestur-Skaftafellssýslu (USVS).
  • Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson – Ungmennasamband Vestur-Skaftafellssýslu (USVS).
  • Sigurður Óskar Jónsson – Ungmennasambandið Úlfljótur (USÚ).
  • Skúli Bragi Geirdal – Íþróttabandalag Akureyrar (ÍBA).

Til varastjórnar UMFÍ:

  • Ásgeir Sveinsson – Héraðssambandið Hrafna-Flóki (HHF).
  • Gunnar Þór Gestsson – Ungmennasamband Skagafjarðar (UMSS).

Hægt er að kynna sér þingið í þaula á vefsíðu Sambandsþings UMFÍ 2025.

 

Sambandsþing UMFÍ