Fara á efnissvæði
04. júní 2025

Sambandsaðilar geta sótt um að halda mót UMFÍ

Unglingalandsmót UMFÍ

Stjórn UMFÍ auglýsir að nú er opið fyrir umsóknir fyrir sambandsaðila UMFÍ og sveitarfélög til næstu ára. Það felur í sér að þau skoði hvort þau vilji og geti haldið bæði Unglingalandsmót UMFÍ og Landsmót UMFÍ 50+. 

Sambandsaðilar UMFÍ geta nú sótt um að halda Unglingalandsmót UMFÍ. Næsta mót sem er til úthlutunar er árið 2027. Einnig geta þeir sem áhuga hafa sótt um að bætast við í röð mótshaldara árin þar á eftir. 

Frestur til að skila inn umsóknum er til 15. september 2025.    

Unglingalandsmót UMFÍ er umfangsmikil íþrótta- og fjölskylduhátíð sem haldin er um verslunarmannahelgina ár hvert.    

Mótið var haldið í fyrsta sinn á Dalvík árið 1992 og hefur síðan þá vaxið og dafnað síðan þá. Frá árinu 2004 hafa mótin verið haldin á hverju ári. Næsta mót verður á Egilsstöðum um verslunarmannahelgina.   

Gera þarf ráð fyrir um 1.000 – 1.500 þátttakendum og því allt að 5.000 mótsgestum, tjaldsvæðum sem ræður við fjöldann, fjölda viðburða og tónlistaratriðum á hverju kvöldi auk miklum fjölda sjálfboðaliða yfir þessa stóru ferðahelgi.    

Framkvæmd mótsins verður í höndum UMFÍ, þeim sambandsaðila sem tekur mótið að sér og viðkomandi sveitafélagi. 

Athygli er vakin á því að stuðningur viðkomandi sveitarfélags þarf að fylgja umsókninni.  

Umsóknum skal skilað til þjónustumiðstöðvar UMFÍ á netfangið umfi@umfi.is. Nánari upplýsingar má fá í síma 568-2929.   

  

Heimasíða Unglingalandsmóts 

Saga Unglingalandsmótsins 

Reglugerð og val á mótsstað 

   

Landsmót UMFÍ 50+ 2027

Sambandsaðilar UMFÍ hafa nú kost á því að sækja um að halda Landsmót UMFÍ 50+ árið  2027. Frestur til að skila inn umsóknum er til og með 15. september 2025.  

Mótið er ætlað einstaklingum 50 ára og eldri. Útfærsla mótsins er í höndum móta- og viðburðanefndar UMFÍ og framkvæmdanefndar mótsins hverju sinni. 

Mótið var haldið í fyrsta sinn á Hvammstanga síðustu helgina í júní árið 2011. Næsta mót verður í Fjallabyggð í lok júní 2025 í samstarfi við Íþrótta- og ungmennasamband Fjallabyggðar (UÍF) og sveitarfélagið Fjallabyggð. 

Framkvæmd mótsins verður í höndum UMFÍ, þeim sambandsaðila sem tekur mótið að sér og viðkomandi sveitafélagi. 

Athygli er vakin á því að stuðningur viðkomandi sveitarfélags þarf að fylgja umsókninni.  

Vinsælar greinar mótsins eru eru boccía, golf, pútt, frjálsar íþróttir, ringó, bridds og ýmsar fleiri.  

Umsóknum skal skilað til þjónustumiðstöðvar UMFÍ á netfangið umfi@umfi.is. Nánari upplýsingar má fá í síma 568-2929.   

  

Heimasíða Landsmóts UMFÍ 50+ 

Saga Landsmóts UMFÍ 50+ 

Reglugerð og vinnureglur mótsins