Ráðuneyti gerir tímamótasamning um nýtingu gagna
Mennta- og barnamálaráðuneytið, Háskóli Íslands, Menntavísindasvið, Háskólinn í Reykjavík (HR) og Rannsóknir og greining (R&G) hafa undirritað nýjan samstarfssamning um þróun samstarfs og miðlun niðurstaðna grunnskólakönnunar Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar (ÍÆ) árið 2026.
Á myndinni hér að ofan eru þær Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra (fyrir miðju), ásamt f.v. Kolbrúnu Þ. Pálsdóttur, forseta Menntavísindasviðs HÍ, Silju Báru Ómarsdóttur, rektor Háskóla Íslands, Ingu Dóru Sigfúsdóttur, stofnanda Rannsókna og greininga, og Ragnýju Þóru Guðjohnsen, faglegum stjórnanda Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar. Myndin var tekin þegar þær undirrituðu samninginn í ráðuneytinu í dag.
Fram kemur í tilkynningu frá Mennta- og barnamálaráðuneytinu að þetta er í fyrsta skiptið sem samkomulag er gert við HR og R&G um miðlun niðurstaðna úr grunnskólakönnun ÍÆ. Það markar nýtt skref í auknu samstarfi þessara aðila sem nú standa þétt saman að verkefninu.
Háskóli Íslands er áfram framkvæmdaraðili ÍÆ og ber ábyrgð á framkvæmd rannsóknarinnar fyrir Mennta- og barnamálaráðuneytið.
Nýtt hlutverk R&G felst í að styðja við miðlun og frekari nýtingu niðurstaðna, meðal annars með aukinni þjónustu við sveitarfélög, skóla og aðra hagaðila. Samningurinn gildir til loka árs 2026 og verður endurmetinn með hliðsjón af reynslu og árangri, með möguleika á framlengingu.
Íslenska æskulýðsrannsóknin er umfangsmesta rannsókn á velferð og viðhorfi barna sem framkvæmd er hér á landi. Markmið hennar er að safna reglubundnum og áreiðanlegum gögnum um velferð, líðan og viðhorf barna og ungmenna og gera niðurstöðurnar aðgengilegar til að styðja við stefnumótun og ákvarðanatöku. Grunnskólakönnun ÍÆ er lögð fyrir á hverju vori og er leitast við að ná til allra nemenda í 4.–10. bekk í grunnskólum landsins. Árið 2025 tóku 24.688 nemendur þátt í rannsókninni eða tæplega 73% nemenda í 4.-10. bekk á landinu öllu. Rannsókn ÍÆ var fyrst framkvæmd árið 2022 og hefur síðan verið í stöðugri þróun með það að markmiði að mæta þörfum hagaðila og styðja betur við farsæld barna.
Meginniðurstöður könnunarinnar fyrir landið í heild eru birtar í árlegum landsskýrslum. Auk þess eru unnar sérstakar sveitarfélaga- og skólaskýrslur fyrir þá aðila sem uppfylla ákveðin skilyrði um þátttöku. Sveitarfélög og skólar hafa þó í auknum mæli kallað eftir frekari greiningum, skýrari túlkun gagna og aukinni eftirfylgni.
Með nýjum samstarfssamningi er brugðist við þessu ákalli. R&G munu bjóða sveitarfélögum, skólum og öðrum hagaðilum viðbótarþjónustu gegn gjaldi, svo sem sértækar greiningar, kynningar og ráðgjöf um túlkun niðurstaðna. Jafnframt mun R&G taka þátt í áframhaldandi þróun skóla- og sveitarfélagsskýrslna með það að markmiði að þær nýtist sem best í starfi á vettvangi.
Samstarfið endurspeglar aukna áherslu stjórnvalda á að efla yfirsýn yfir stöðu barna og ungmenna í íslensku samfélagi, bæði hvað varðar menntun og líðan. Á undanförnum misserum hafa stjórnvöld kynnt ýmis verkefni og aðgerðir sem miða að því að styrkja gagnasöfnun, greiningu og miðlun upplýsinga um hag barna. Með þessu nýja samkomulagi er stigið mikilvægt skref til að tryggja að gögn ÍÆ nýtist enn betur til umbóta í skólastarfi og stefnumótun á öllum stjórnsýslustigum.