Fara á efnissvæði
23. apríl 2025

Ráðstefna um börn með fötlun - áskoranir og tækifæri.

Ráðstefnan Fötluð börn og fjölbreyttur menningar- og tungumálabakgrunnur – áskoranir og tækifæri – fer fram dagana 8. – 9. maí næstkomandi. Þetta er vorráðstefna Ráðgjafar- og greiningarstöðvar (RGR), í samstarfi við Landssamtökin Þroskahjálp. Ráðstefnan fer fram á Hilton Reykjavík Nordica og verður einnig streymt á netinu.

Ráðstefnan er einn stærsti vettvangur þeirra sem starfa með börnum með öðruvísi taugaþroska. Nú þegar hafa um 400 einstaklingar skráð sig til þátttöku!

Með auknum fjölda einstaklinga á Íslandi með fjölbreyttan menningar- og tungumálabakgrunn hefur aukist þörfin fyrir samtal um stöðu og þarfir barna með fötlun af erlendum uppruna og fjölskyldurþeirra.

Markmið ráðstefnunnar í ár er að stuðla að vitundarvakningu um áskoranir og tækifæri í þjónustu við þennan hóp. Auk þess að draga fram ólík sjónarhorn, úr fræða- og reynsluheimi, og horfa til framtíðar með það fyrir augum að mæta og styðja enn betur við fjölskyldur með fjölbreyttar þarfir.

 

Fjölbreytt dagskrá

Dagskráin er fjölbreytt og spennandi, með fyrirlestrum og umræðum frá sérfræðingum á sviði fötlunar og fjölmenningar. 

Aðalfyrirlesari ráðstefnunnar verður Jarno Lehtonen, þróunarstjóri hjá Tukena Foundation í Finnlandi. Hann ætlar að deila reynslu sinni af stöðu málaflokksins í Finnlandi og aðgerðum sem stuðla að jöfnum réttindum til þjónustu. Jarno hefur mikla reynslu af skipulagi þjónustu og innleiðingu þróunarverkefna fyrir fjölskyldur fatlaðra barna með erlendan bakgrunn.

Tukena Foundation er sjálfseignarstofnun í Finnlandi sem starfar á landsvísu og miðar að því að styðja við gott líf fyrir fólk með mismunandi stuðningsþarfir. Stofnunin stuðlar að jöfnum réttindum og mannréttindum í samfélaginu og eflir einstaklinga með fjölbreyttar þarfir í daglegu lífi. Hér er hægt að lesa meira um Tukena.

 

Gervigrein sem styður við fjölbreytni

Á ráðstefnunni verður fjallað um tvöfalda jaðarsetningu (e. Double Minority Challenge) sem vísar til samtvinnunar mismunarbreyta sem fatlaðir einstaklingar standa frammi fyrir þegar þeir eru innflytjendur eða flóttafólk. Farið verður yfir þjónustu, áskoranir og tækifæri í starsemi Ráðgjafar- og greiningarstöðvar sem og fjölgun tilvísana barna með erlendan bakgrunn til Ráðgjafar- og greiningarstöðvar. Reynsla sveitarfélaga af þjónustu við börn og fjölskyldur af erlendum uppruna verður dregin fram.

Kynning verður á störfum brúarsmiða, MEMM verkefninu og notkun gervigreindar til að styðja við fjölbreytni og ólíka menningu. Þar að auki verða áætlanir kynntar hvað varðar nýjan matsferil til að samræma námsmat í grunnskólum út frá ólíkum hópi barna. Sjónarhorn ÍSAT kennara verður dregið fram sem og reynsla og upplifun starfsfólks í þjónustu við fötluð börn af erlendum uppruna. Auk þess verður varpað ljósi á sjónarhorn og reynslu fjölskyldna og einstaklinga með ólíkar þarfir og fjölbreyttan menningar- og tungumálabakgrunn. 

Umfjöllun verður um stöðu túlkamála á Íslandi auk þess sem fjallað verður um málþroska fatlaðra barna með fjölbreyttan menningar- og tungumálabakgrunn og hagnýt ráð til að styðja við málþroska og tjáskipti þeirra. Klettaskóli mun varpa ljósi á tækifæri í tækninni og Æfingastöð mun deila reynslu sinni af fjölskyldumiðaðri endurhæfingu. Umfjöllun verður um áfallamiðaða nálgun í vinnu með börnum með hegðunarvanda og farið verður yfir menningarfærni og inngildingu í starfi með fjölbreyttum hópi.

Boðið verður upp á veitingar í kaffihléum og hádegisverðarhlaðborð á fimmtudeginum!

Boðið verður upp á drykk í lok ráðstefnudags á fimmtudeginum til að fagna fertugustu vorráðstefnu Ráðgjafar- og greiningarstöðvar!

Ráðstefnan hefur hagnýtt gildi fyrir alla sem starfa með fólki með fötlun, bæði börnum og fullorðnum.

Undirbúningsnefndin hvetur alla áhugasama til að skrá sig fyrir 30. apríl, en snemmskráning lýkur 15. apríl. 

Frekari upplýsingar og skráning er að finna á heimasíðu RGR.

Skráning og frekari upplýsingar