Fara á efnissvæði
04. febrúar 2026

Opnað fyrir skil á starfsskýrslum

Opnað verður fyrir skil á starfsskýrslum í skilakerfi ÍSÍ og UMFÍ á morgun, fimmtudaginn 5. febrúar. Skila þarf skýrslum fyrir 15. apríl næstkomandi.

Starfsskýrsluskil þurfa að innihalda upplýsingar um félagsmenn og iðkendur á síðasta starfsskýrslutímabili, þ.e. fyrir tímabilið 1. janúar til 31. desember 2025, ásamt innslegnum lykilupplýsingum úr ársreikningum fyrir síðasta starfsár (2025) og upplýsingum um núverandi stjórn og starfsfólk. Einnig þarf að skila ársreikningi undirrituðum af stjórn og skoðunarmönnum á pdf-formi og núgildandi lögum á pdf- formi inn í kerfið.

Í febrúar og mars verður boðið upp á kynningu og fræðslu á skilum í kerfinu. Boðið verður uppá nokkrar mismunandi tímasetningar.

Nánari upplýsingar um skilakerfið gefur Elías Atlason, starfsmaður skilakerfis ÍSÍ og UMFÍ.

Hægt er að senda honum skeyti á netfangið: elias@isi.is

 

Hér er hlekkur á skilakerfið