Ný stjórn UMFÍ

Töluverðar breytingar urðu á stjórn UMFÍ í gær þegar sjö ný komu inn í ellefu stjórnarsæti. Tvö sem áður sátu í stjórn UMFÍ voru kosin í varastjórn. Jóhann Steinar Ingimundarson, formaður UMFÍ, var sjálfkjörinn en hann gaf einn kost á sér.
Eins og ætíð á sambandsþingum UMFÍ var kosið um alla í stjórn, líka sitjandi stjórnarfólk. Kosið er um stjórn UMFÍ á Sambandsþingum UMFÍ, sem haldin eru á tveggja ára fresti.
Atkvæðagreiðslan var rafræn. Athygli vakti þegar atkvæði voru ljós að þau Margrét Sif Hafsteinsdóttir og Birgir Már Bragason voru jöfn. Formaður kjörnefndar lét þau því draga spil til að skera úr um kjörið. Margrét dró ás, sem landaði henni sæti í stjórn UMFÍ. Birgir gaf því kost á sér í varastjórn og hlaut kosningu í hana.
Þessi eru í stjórn
Ný stjórn UMFÍ er eftirfarandi (í stafrófsröð, að undanskildum formanni):
Jóhann Steinar Ingimundarson, formaður UMFÍ
- Guðný Stefanía Stefánsdóttir, sem kemur frá Héraðssambandi Vestfirðinga, og er hún ný í stjórninni.
- Halla Margrét Jónsdóttir, formaður Ungmennaráðs UMFÍ og kemur af sambandssvæði Íþróttabandalags Akraness, kemur sömuleiðis ný inn í stjórn UMFÍ.
- Helgi Sigurður Haraldsson frá Héraðssambandinu Skarphéðni (HSK) er nýr inn.
- Margrét Sif Hafsteinsdóttir, sem kemur frá Íþróttabandalagi Reykjavíkur, kemur ný inn.
- Skúli Bragi Geirdal, sem kemur frá Íþróttabandalagi Akureyrar (ÍBA), kemur nýr inn í stjórnina.
- Sigurður Óskar Jónsson hlaut kosningu á ný en hann kemur frá Ungmennasambandinu Úlfljóti (USÚ).
Í varastjórn eru:
- Birgir Már Bragason, kemur nýr inn í stjórnina. Hann sat þingið í nafni Íþróttabandalags Reykjanesbæjar (ÍRB).
- Gunnar Þór Gestsson, sem sat í stjórn og var varaformaður fyrri stjórnar. Gunnar Þór er jafnframt formaður Ungmennasambands Skagafjarðar (UMSS).
- Ragnheiður Högnadóttir, sem sat áður í stjórninni.
- Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson, sem kemur nýr inn. Hann kemur frá Ungmennasambandi Vestur-Skaftafellssýslu (USVS).
Þau sem hætta í stjórn UMFÍ eru:
Ásgeir Sveinsson, Gunnar Gunnarsson, Guðmunda Ólafsdóttir, Guðmundur Sigurbergsson, Hallbera Eiríksdóttir, Málfríður Sigurhansdóttir og Rakel Másdóttir.
Fyrrverandi stjórnarfólk var kvatt með blómum og kveðjum við þingslitin í gærkvöldi.
