17. mars 2026
Kennsla og kynning á skilakerfi ÍSÍ og UMFÍ
Skil á starfsskýrslum íþrótta- og ungmennafélaga er nú í fullum gangi í skilakerfi ÍSÍ og UMFÍ. Við skilin hafa komið fram ýmsar fyrirspurnir og pælingar. Af þeim sökum verður boðið upp á kennslu og kynningu á kerfinu og farið yfir helstu atriði sem mikilvægt er að skerpa á.
Á námskeiðinu verður farið yfir það sem gera þarf við skil á starfsskýrslum og hvernig skrá á upplýsingar í kerfið. Kennslan fer fram á Teams. Þau sem skrá sig í kennsluna fá sendan hlekk í tölvupósti.
Í boði eru tveir dagar og geta þátttakendur valið á milli þeirra. Dagsetningarnar eru 18. mars næstkomandi og 25. mars.