Jón er sjálfboðaliði Suðurnesja 2025
Jón B. Olsen í Hestamannafélaginu Mána er sjálfboðaliði Suðurnesja árið 2025. Í dag er Alþjóðlegur dagur sjálfboðaliðans. Af því tilefni var valinn sjálfboðaliði ársins á Suðurnesjum. Óskað var eftir tilnefningum frá öllum íþróttafélögum á Suðurnesjum. Nafn Jóns var valið af handahófi úr hópi tilnefninga og hlýtur hann viðurkenninguna nú.
Sjálfboðaliðar sinna óeigingjörnu starfi í þágu ýmissa félagsmála um land allt og er íþróttahreyfingin þar engin undantekning en innan hennar eru ófá störf innt af hendi sjálfboðaliða. Án sjálfboðaliða yrði íþróttalíf mun fátæklegra og gætu mörg íþróttafélög ekki sinnt sinni starfsemi eða haldið úti því mikilvæga starfi sem þau sinna. Verður því þessum einstaklingum seint fullþakkað fyrir þeirra störf.
Jón hefur verið í félaginu í tæp 40 ár og hefur á þeim tíma unnið mikið og gott starf fyrir félagið. Hann hefur til að mynda setið sem formaður félagins 1997-2001, hann starfaði fyrir Landssamband Hestamannafélaga um tíma og er handhafi gullmerkis Landssambands hestamanna árið 2014.
Jón og fjölskylda hans stunduðu hestamennsku af miklu kappi og kepptu mikið á sínum tíma en Jón hefur átt keppnishross í fremstu röð í tugi ára.
Þó að útgerð hans hafi minnkað töluvert á síðustu árum þá ríður hann mikið út og sinnir sínum hrossum vel.
Jón er tilnefndur sem sjálfboðaliði ársins 2025 af Mána því hann er alltaf fyrstur að mæta á staðinn ef óskað er eftir aðstoð félaga okkar við ýmiskonar verkefni og hann mætir á alla viðburði sem félagið stendur fyrir, sama hvort það séu fundir eða skemmtanir.
Svæðisfulltrúar íþróttahéraðanna á Suðurnesjum og íþróttahreyfingin þakkar Jóni fyrir hans mikilvæga framlag í þágu íþróttahreyfingarinnar á Suðurnesjum.