Hvenær er þing?
Nú styttist í þing og ársfundi sambandsaðila UMFÍ. Er ætlunin að heiðra sjálfboðaliða á þingi? UMFÍ hvetur sambandsaðila til að senda inn tillögur að heiðrunum fyrir þing og ársfundi um allt land - og líka dagsetningar þinga.
Á vefsíðu UMFÍ geta sambandsaðilar UMFÍ nálgast eyðublað til að fylla út ef mæla á með eða tilnefna fólk til starfsmerkis UMFÍ eða aðrar heiðranir.
Auk starfsmerkja og ýmissa heiðursviðurkenninga þá er gott að upplýsa með fyrirvara um dagsetningu þinga og aðalfunda sambandsaðila. Við höfum þegar fengið dag- og tímasetningar nokkurra sambandsaðila og hvetjum sem flesta til að senda okkur upplýsingar.
Það væri því gott að senda upplýsingar um það á netfangið umfi@umfi.is.
Þessi voru hér árið 1968
Hægt er að upplýsa um dagsetningar þinga með ýmsum hætti. Engilbert Olgeirsson, framkvæmdastjóri HSK, sagði okkur á dögunum með skemmtilegum hætti frá héraðsþingi sambandsins sem verður á Borg í Grímsnesi 26. mars næstkomandi. Með fylgdi mynd sem var tekin þegar þing HSK var haldið þar í fyrsta sinn. Þetta var árið 1968 og fullkomið tilefni til að ná í flasskubbinn. Ljósmyndarinn náði hér einstakri mynd.
Á myndinni má sjá marga sem í forsvari voru í íþróttastarfi á sambandssvæði HSK á sínum tíma, hóp af jakkafataklæddum körlum með bindi og vasaklúta og átta konur, sem fæstar eru klæddar eins. Á meðal karlanna er Guðmundur Kr. Jónsson, heiðursfélagi UMFÍ, íþróttafrömuðurinn Sigurður Greipsson, Hafsteinn Þorvaldsson, fyrrverandi formaður UMFÍ, og forveri hans, séra Eiríkur J. Eiríksson, sem var formaður UMFÍ lengst allra eða frá árinu 1938 til ársins 1968.
Áhugasömum er bent á að myndina má sjá í aldarsögu HSK og eru þar birt nöfn allra.
Við hvetjum forsvarsfólk sambandsaðila og aðildarfélaga til að viðra gömlu myndirnar með fréttum um dagsetningu þinga og heiðrana sem fram undan eru.