Fara á efnissvæði
13. júní 2025

Gunnhildur er nýr svæðisfulltrúi

„Ég er mjög spennt og full tilhlökkunar þar sem fullt er af tækifærum fyrir héruðin og ekki síst íþróttafélögin,“ segir Gunnhildur Gunnarsdóttir, sem hefur verið ráðin svæðisfulltrúi íþróttahéraðanna á Vesturlandi. Hún tekur við starfinu af Heiðari Mar Björnssyni, sem á dögunum var ráðinn framkvæmdastjóri Íþróttabandalags Akraness (ÍA).  

Gunnhildur ólst upp í Stykkishólmi og býr í Helgafellssveit með manni og börnum. Hún hefur verið tengd íþróttum frá barnæsku. Hún spilaði rúmlega 400 meistaraflokksleiki með kvennaliðum Snæfells og Hauka í körfuhnattleik, varð tvisvar sinnum Íslandsmeistari með Snæfelli (2015 og 2016) og hampaði bikarmeistaratitli í tvígang, með Haukum árið 2014 og árið 2016 með Snæfelli en þar var hún fyrirliði.  

Tölfræðinördar gætu haft gaman af því að Gunnhildur skoraði 1994 stig í 181 deildarleik með Snæfelli og 242 stig í 24 leikjum í úrslitakeppni með Snæfelli. Hún lék því alls 205 leiki fyrir Snæfell á Íslandsmótinu og skoraði í þeim 2236 stig. Gunnhildur lék einnig 82 deildarleiki með Haukum á Íslandsmóti og á því samtals 263 leiki og 2738 stig í efstu deild kvenna í körfubolta. 

Til viðbótar lék Gunnhildur 36 landsleiki fyrir kvennalandsliðið í körfuknattleik á árunum 2012 til 2019 þar af fjóra sem fyrirliði. Hún vann fjögur silfurverðlaun með landsliðinu á Smáþjóðaleikunum. 

Gunnhildur er í dag með marga hatta, er framkvæmdastjóri Héraðssambands Snæfellsness og Hnappadalssýslu (HSH) og íþróttakennari við Grunnskólann í Stykkishólmi. Hún kemur til starfa sem svæðisfulltrúi íþróttahéraðanna í ágúst. 

 

Svæðisfulltrúar um allt land

Starfsfólk svæðisstöðva íþróttahéraðanna eru sextán talsins um allt land og í öllum landshlutum. Hver svæðistöð styður við íþróttahéruð á sínu svæði og hjálpar þeim að innleiða stefnu íþróttahreyfingarinnar og ríkisins í íþróttamálum.

Starfsemi svæðisstöðvanna hófst fyrir um ári.

Ein af áherslum svæðisstöðvanna er að auka þátttöku barna og ungmenna í skipulögðu íþróttastarfi á Íslandi, sérstaklega börn með fatlanir, frá tekjulægri heimilum og þau sem hafa fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn.

Á svæðisstöðinni á Vesturlandi eins og um allt land eru tveir starfsmenn. Á svæðisstöðinni á Vesturlandi mun Gunnhildur starfa með Álfheiði Sverrisdóttur. 

 

Lesa má meira um svæðisstöðvar íþróttahéraðanna hér.

Lesa meira