Fara á efnissvæði
09. mars 2026

Góð þátttaka á fundi um raddir ungs fólks

Viðburðurinn Raddir ungs fólks fór fram í Menntaskólanum á Egilsstöðum á föstudag. Viðburðurinn var í framhaldi af sameiginlegum fundi íþróttahéraðanna á Austurland og svæðisstöðva daginn áður. 

ÍSÍ og UMFÍ stóðu að Röddum ungs fólks í samstarfi við ungmennaráð UMFÍ og svæðisstöð íþróttahéraðanna á Austurlandi. Karen Hulda Finnsdóttir, sem sæti á í Ungmennaráði UMFÍ, tók þátt í fundinum.

Mjög góð þátttaka var á viðburðinum og mætti bæði hópur ungs fólks, og bæði úr íþróttahreyfingunni og stjórnsýslunni á Austurlandi auk þess sem forystufólk ÍSÍ og UMFÍ tóku virkan þátt í fundinum. 

Ólafur Stefánsson opnaði viðburðinn með erindi um það að þótt fólk tapi í keppnum og öðrum áskorunum þá skipti máli að tapa ekki hjartanu. 

Ungt fólk á aldrinum 15–25 ára tóku svo þátt í kaffihúsaspjalli með ráðafólki um málefni tengd íþróttastarfi og höfðu þau margt til málanna að leggja. Niðurstöður umræðnanna verða meðal annars nýttar í sameiginlega stefnumótun íþróttahreyfingarinnar.

 

Hér má sjá nokkrar myndir frá fundinum. Gunnar Gunnarsson tók myndirnar.