Fara á efnissvæði
19. mars 2026

Fræðsluerindi um bókhald og ársreikninga endurtekið

Fræðsluerindi ÍSÍ og UMFÍ fyrir sambandsaðila og aðildarfélög um grunnatriði í bókhaldi og uppbyggingu ársreikninga verður endurtekið fimmtudaginn 26. mars. Fræðslan fer fram í gegnum fjarfundarbúnað. 

Síðasta fræðsla um bókhald og ársreikninga fór fram í byrjun mánaðar og var hún afar vel sótt hvaðanæva að af landinu. 

Í erindinu getur starfsfólk og stjórnendur fengið innsýn í utanumhald bókhalds og gerð ársreikninga.

Gert er ráð fyrir að fræðslan taki um eina klukkustund. 

Á meðal þess sem farið verður yfir:

  • Lög um bókhald.
  • Framsetning og innihald ársreikninga.
  • Leiðbeiningar um fjármál íþróttahreyfingarinnar.
  • Leiðbeiningar um skattskyldu.
  • Gerð fjárhagsáætlana.
  • Almannaheillaskrá Skattsins.

Smelltu hér að neðan til þess að skrá þig til leiks:

Taka þátt í fræðslu um bókhald og ársreikninga