Fara á efnissvæði
18. mars 2026

Fræðsla um hinsegin málefni í íþrótta- og æskulýðsstarfi

Í íþrótta- og æskulýðsfélögum um allt land taka þátt börn og unglingar með ólíkan bakgrunn og reynslu – þar á meðal hinsegin ungmenni. Það er því mikilvægt að skapa umhverfi þar sem öll fá að njóta sín, finna til öryggis og upplifa vellíðan. Fræðsla og aukin þekking á hinsegin málefnum er lykilatriði í að draga úr fordómum og mismunun og stuðla að jákvæðu og inngildandi starfi.

Miðvikudaginn 25. mars er boðið upp á opið og aðgengilegt námskeið þar sem farið verður yfir helstu hugtök tengd hinseginleika, kynhneigð og kynvitund, ásamt umræðu um kyneinkenni, kyntjáningu og mikilvægi vandaðrar orðanotkunar. Einnig verða tekin fyrir dæmi og dæmisögur sem styðja við betri skilning, auk þess sem þátttakendur fá tækifæri til umræðu og spurninga.

Fræðari á vegum Samtakanna ‘78 leiðir námskeiðið og miðlar þekkingu sinni og reynslu á málefninu.

Námskeiðið fer fram í sal Skátanna að Hraunbæ 123, Reykjavík.

Aðgangur er ókeypis og öll eru hjartanlega velkomin. 

Smelltu hér til þess að skrá þig.