Fara á efnissvæði
25. febrúar 2026

Fræðsla um grunn í bókhaldi og ársreikningum félaga

ÍSÍ og UMFÍ standa fyrir stuttu fræðsluerindi fyrir sambandsaðila og aðildarfélög þeirra um grunnatriði í bókhaldi og uppbyggingu ársreikninga. Í erindinu getur starfsfólk og stjórnendur fengið innsýn í utanumhhald bókhalds og gerð ársreikninga.

Í boði verða tvö skipti, sem taka eina klukkustund í hvort sinn.

Fræðsluerindin verða haldin miðvikudaginn 4. mars á milli klukkan 12:00 – 13:00 og aftur á milli klukkan 20:00 – 21:00 sama dag.

Á meðal þess sem farið verður yfir:

  • Lög um bókhald.
  • Framsetning og innihald ársreikninga.
  • Leiðbeiningar um fjármál íþróttahreyfingarinnar.
  • Leiðbeiningar um skattskyldu.
  • Gerð fjárhagsáætlana.
  • Almannaheillaskrá Skattsins.

Smelltu hér að neðan til þess að skrá þig til leiks:

Taka þátt í fræðsluerindi