Fara á efnissvæði
11. febrúar 2026

Fjölnir og fleiri félög fá betri yfirsýn á fjármálin

Ungmennafélagið Fjölnir í Grafarvogi glímdi fyrir nokkrum misserum síðan við erfiðleika í rekstri. Stjórnendur félagsins - og reyndar fleiri íþróttafélaga - hafa nýtt sér tæknina til að fá betri yfirsýn yfir fjármálin og bætt tökin á rekstrinum. 

„Hugbúnaður Advise er bylting í rekstri stórra íþróttafélaga eins og okkar í Fjölni. Við fáum betri yfirsýn yfir rekstur deilda og félagsins alls. Við getum veitt stjórnendum deilda aðgang að því sem þau varðar og sparað með því tíma,“ segir Guðmundur G. Sigurbergsson, sem tók við starfi framkvæmdastjóra Ungmennafélagsins Fjölnis í Grafarvogi í október árið 2024. 

Félagið innleiddi nýverið hugbúnaðarlausnina í rekstur sinn. Guðmundur segir hafa reynst félaginu vel. Það sé einfalt í notkun, einfaldara en hefðbundið bókhaldskerfi sem gerir sjálfboðaliðum kleift að finna sjálft upplýsingar um fjárhags- og rekstrarstöðu deilda sinna án aðkomu sérfræðinga, einfalt mál sé að bera saman tímabil og margt fleira. 

 

Auðveldar gagnadrifnar ákvarðanir

Hugbúnaðurinn heitir fullu nafni Advise Business Monitor og er íslensk hugbúnaðarlausn. Hún nýtir gervigreind til að gera rekstrar- og fjármálagögn fyrirtækja aðgengilegri fyrir stjórnendur með betri hætti en áður. 

Hugbúnaðurinn tengist bókhaldskerfum notenda, staðlar gögnin sem þar er að finna og gerir notendum kleift að setja þau fram á myndrænan hátt. Notendur hafa, eins og Guðmundur benti á, betri yfirsýn yfir reksturinn. Við það verður áætlanagerð auðveldari, frávikagreiningar betri og hægt að skoða mælaborð, sem byggt er á bókhaldsgögnum. Það gerir stjórnendum auðveldara að taka upplýstar og gagnadrifnar ákvarðanir. Þetta sparar tíma og vinnu fyrir notendur. 

Búnaður Advise tengist bókhaldskerfum og staðlar gögn óháð kerfum, það getur sameinað gögn frá mörgum félögum og kerfum og býður upp á möguleikann á niðurbroti á einstakar færslur. Það getur dregið fram frávik og villur fyrr en áður og getur því bætt ákvarðanatöku – ásamt því að koma í veg fyrir að rangar ákvarðanir verði teknar. 

Með Advise fylgir sérsniðið mælaborð sem hægt er að aðlaga ólíkum rekstri og aðgangsstýring sem tryggir að hver notandi sjái aðeins sínar tölur. 

Lausnin er þegar í notkun hjá yfir 1.000 stjórnendum á Íslandi.

 

Mælaborð með helstu upplýsingum

UMFÍ hefur jafnframt gengið til samninga við Advise um notkun hugbúnaðarlausnarinnar. Einar Þorvaldur Eyjólfsson, rekstrarstjóri UMFÍ, segir marga kosti fylgja. Auk betri yfirsýnar yfir reksturinn þá sé kostur að hægt verði að kalla fram myndræna framsetningu á gögnum, búa til mælaborð með helstu fjárhagsupplýsingum og kalla fram stjórnendaskýrslu, en það geri stjórnarfundi mun skilvirkari. 

„Advise gerir okkur kleift að sjá stöðuna skýrt og bregðast fyrr við frávikum en áður – og með réttum hætti,“ segir hann. 

Hvaða hugbúnaður er í notkun hjá ykkur? Við fögnum öllum ábendingum um gagnlegan hugbúnað sem bætir rekstur sambandsaðila UMFÍ og aðildarfélaga.

 

Meiri upplýsingar um Advise má finna hér: 
Advise Business Monitor

 

Hér að neðan má sjá dæmi úr mælaborði Advise og mynd af Guðmundi G. Sigurbergssyni, framkvæmdastjóra Fjölnis.