Félög í Vesturbyggð saman í HHF-íþróttafélag
„Við höfum trú á því að sameinað íþróttafélagið verði öflugra, reksturinn hagkvæmari og utanumhaldið einfaldara,“ segir Erla Rún Jónsdóttir, formaður Íþróttafélagsins Bílddælings á Bíldudal. Þau sögulegu tímamót hafa orðið á íþróttastarfi á sunnanverðum Vestfjörðum að Íþróttafélagið Hörður (ÍH) á Patreksfirði og Íþróttafélag Bílddælinga (ÍFB) hafa sameinað krafta sína og gengið í eina sæng undir heitinu HHF-íþróttafélag.
Sameinað íþróttafélag sem byggir á starfi og arfleifð félaganna tveggja.
Félögin verða eftir sem áður aðildarfélög Héraðssambandsins Hrafna-Flóka (HHF).
Erla Rún segir samvinnu hafa lengi verið á milli félaganna og hafi sameining fengið byr undir báða vængi í kjölfar sameiningar sveitarfélaganna í Vesturbyggð fyrir tæpum tveimur árum.
Tálknfirðingar standa reyndar hjá í sameiningu íþróttafélaganna að sinni. Erla Rún segir það mögulega skýrast af því að íþróttastarfsemin þar sé með öðru móti en á Patreksfirði og Bíldudal og að ungmennafélagið þar sinni einnig ýmsum fjölskylduviðburðum. Börnum hafi sem dæmi fækkað á Bíldudal og sé horft til þess að þau geti farið á æfingar á Patreksfirði og öfugt.
Betra til framtíðar
Markmið sameiningarinnar er að styrkja íþróttastarf á svæðinu og skapa enn betri grunn fyrir uppbyggingu íþrótta til framtíðar. Með því að sameina krafta, þekkingu og reynslu félaganna skapast sterkari heild sem getur betur staðið að fjölbreyttu og metnaðarfullu íþróttastarfi fyrir börn, ungmenni og fullorðna.
Í gegnum árin hafa bæði ÍH og ÍFB gegnt mikilvægu hlutverki í samfélaginu og átt stóran þátt í að efla íþróttir, hreyfingu og samfélagsanda á svæðinu. Sú arfleifð lifir áfram í sameinuðu félagi þar sem saga, gildi og starf félaganna verða áfram grunnur að starfseminni.
Í stjórn hins sameinaða félags sitja fulltrúar frá Patreksfirði, Bíldudal og Barðaströnd. Það endurspeglar vilja til að byggja upp sameiginlegt íþróttastarf fyrir allt svæðið og tryggja að rödd allra byggðarkjarna heyrist í starfi félagsins.
„Þetta er stórt skref en við teljum betra til framtíðar að vera saman í félagi,“ segir Erla Rún.