Ertu að skila starfsskýrslu?
Við skil á starfsskýrslum í skilakerfi ÍSÍ og UMFÍ síðastliðin ár hafa ýmsar fyrirspurnir og athugasemdir komið fram, sem rétt þykir að veita athygli. Hér að neðan eru talin fram helstu atriði sem talið er rétt að skerpa á til útskýringar.
Hentugt er að hafa þessar upplýsingar í huga, þegar skráð er í skilakerfið.
Ýmsar endurbætur
Endurbætur í skilakerfinu sem settar voru inn á síðasta ári eru:
- Við innskráningu í kerfið er beðið um að skrá netfang, sem notað verður til að senda út tilkynningar úr kerfinu.
- Hægt er að skrá hlutfall af stöðugildi, til dæmis 0,5 fyrir hálft stöðugildi.
- Hægt að sækja ársreikning sem PDF-skjal.
- Hægt að sækja lista yfir iðkendur og félagsmenn sem Excel-skrá, með því að nota Hlaða niður.
- Samantektarskjal (pdf) hefur verið uppfært. Þetta er skjal sem verður til þegar búið er að skila inn gögnum og sýnir heildaryfirlit yfir skil.
- Íþróttahéruð geta sótt yfirlit yfir iðkendur og félagsmenn, fyrir öll aðildarfélög innan sinna vébanda, sem Excel-skrá beint úr kerfinu (Sjá undir: Staða félags). Sérsambönd geta sótt yfirlit yfir iðkendur sinnar íþróttar og skoðað sem Excel-skrá beint úr kerfinu niður á íþróttafélag (Sjá undir: Staða félags).
- Búið er að bæta við röðun á dálka undir liðnum Staða félaga.
Skráningar iðkenda og félagsmanna
Meistaraflokkar
- Athuga þarf sérstaklega hvort meistaraflokkar í öllum deildum eru skráðir í skilakerfið. Oft eru meistaraflokkar ekki tengdir í Abler-skráningarkerfið og flytjast því ekki yfir í skilakerfið.
Íþróttafólk með fötlun
- Sé félag með skipulagt starf fyrir iðkendur með fötlun þarf að skrá slíkt í möppuna Fatlaðir. Sé hún ekki til staðar skal óska eftir að stofna hana með því að senda tölvupóst á skila@isi.is.
Skipulagt félagsstarf
- Sé félag með skipulagt félagsstarf sem fellur utan ÍSÍ en tilheyrir UMFÍ skal skrá þá iðkendur í flokkinn Skipulagt félagsstarf. Dæmi um slíkt eru skák, rafíþróttir, bridds, leiklist o.s.frv. Sé sú mappa ekki til staðar skal óska eftir stofna hana og senda tölvupóst á skila@isi.is.
Almennt um iðkendur og félagsmenn
- Ef lesnir eru inn iðkendur úr mörgum flokkum þarf að sameina kennitölur allra flokka í eitt skjal og lesa það svo inn.
- Passa að hafa Kennitala í reit A1 í Excel skjali.
Yfirlit aðila
Skrá stofn dags. ef hún er ekki tilgreind. Ef röng dagsetning er skráð skal senda tölvupóst með réttri stofndagsetningu á netfangið skila@isi.is.
Stjórn og starfsmenn
- Ef upp kemur villa við skráningu netfangs skal athuga hvort aukabil sé fyrir framan eða aftan netfangið.
- Engin svæði eiga að vera auð. Setja 0 í svæði þar sem það á við.
Lög og ársreikningar
- Setja skal undirritaða lokaútgáfu ársreiknings í viðhengi. Hægt er að setja mörg skjöl í viðhengi, ef til dæmis undirritanir eða skýringar eru á öðru skjali.
Fjármál
- Ef félag er með eina deild skal skrá undir nafni deildar en ekki undir aðalstjórn.
- Ef félag er með fleiri en eina deild er mikilvægt að skrá inn á hverja deild fyrir sig en ekki skrá allt á aðalstjórn.
- Engin svæði eiga að vera auð. Setja 0 í svæði þar sem það á við.
Skýringar við lykla undir Fjármál
Hér má sjá bókhaldslykla og skýringar þar sem við á:
11599 Styrkir sveitarfélaga: Eingöngu styrkir frá sveitarfélögum m. a. húsaleiga, ferðastyrkir, afreksstyrkir.
14998 Aðrir styrktaraðilar: Eingöngu styrkir frá einstaklingum og fyrirtækjum.
14999 Framlög og styrkir alls: Öll framlög og allir styrkir, að meðtöldum lyklum 11599 og 14998.
16999 Tekjur af mótum alls:
19999 Auglýsingatekjur alls:
21999 Húsa- og vallarleigutekjur alls:
22100 Félagsgjöld
22200 Æfingagjöld
29998 Aðrar tekjur alls: Allar aðrar tekjur að meðtöldum Félagsgjöldum (22100) og Æfingagjöldum (22200).
29999 TEKJUR ALLS:
34998 Verktakagreiðslur: Allar verktakagreiðslur, m.a. til þjálfara, leikmanna, sérfræðinga og iðnaðarmanna.
34999 Laun og verktakagreiðslur alls: Öll laun og verktakagreiðslur að meðtöldu 34998.
35999 Styrkir til deilda alls:
36999 Félagaskipti og sala leikmanna alls:
39999 Áhöld og tæki alls:
41999 Ferðakostnaður móta innanlands alls:
42999 Ferðakostnaður móta erlendis alls
43999 Annað:
44999 Þátttaka í mótum alls: Allar aðrar tekjur að meðtöldum Félagsgjöldum (22100) og Æfingagjöldum (22200).
47999 Kostnaður v/mótahalds alls.
52999 Rekstur mannvirkja alls.
55999 Rekstur skrifstofu alls.
59999 Kynning, fræðsla og útbr. alls.
64999 Kostn. samkeppnisreksturs alls.
74998 Önnur gjöld alls.
78999 Fjármagnsliðir.
GJÖLD ALLS
79000 Hagnaður/tap tímabilsins
84999 Fastafjármunir alls:
89997 Handbært fé: Sjóður og óbundnar bankainnstæður.
89998 Veltufjármunir alls: Allir veltufjármunir, m.a. vörubirgðir, viðskiptakröfur, fyrirframgreiddur kostnaður, sjóðir og bankainnstæður.
89999 EIGNIR
91999 Eigið fé alls
94999 Langtímaskuldir alls
99997 Skammtímaskuldir alls
99998 Skuldir alls
99999 SKULDIR OG EIGIÐ FÉ ALLS
Að lokum
Athugið að til þess að klára skilin þarf að ýta á hnappinn Skila skýrslu, sem er neðst til hægri á síðunni þegar allir hringir eru grænir.