Erla endurkjörin formaður HSS

„Þótt þingin séu langt í burtu þá er mikilvægt að mæta og við erum afar ánægð með mætinguna,“ segir Erla Björk Jónsdóttir, formaður Héraðssambands Strandamanna (HSS). 78. ársþing sambandsins fór fram þriðjudaginn 10. júní. Aðildarfélög HSS skiptast á að halda þingin og var það að þessu sinni á svæði Leifs heppna í félagsheimilinu í Trékyllisvík í Árneshreppi. Í kringum þrjátíu fulltrúar aðildarfélaga HSS mættu á þingið ásamt gestum frá UMFÍ og ÍSÍ.
Töluverð breyting varð á stjórn HSS. Erla, sem kom inn sem formaður í fyrra, var endurkjörin. Þrjú komu ný inn í stjórnina. Ný inn eru þau Valgeir Kristjánsson, sem varð varaformaður, og Sigrún Sverrisdóttir, sem tekur við hlutverki gjaldkera. Auk Erlu er Ragnheiður Birna Guðmundsdóttir áfram ritari. Auk þeirra kom Rósmundur Númason nýr inn í stjórn sem meðstjórnandi. Nýir varamenn komu líka inn í stjórnina.
Birna Hannesdóttir, svæðisfulltrúi íþróttahéraðanna á Vestfjörðum, var fulltrúi UMFÍ á þinginu. Andri Stefánsson, framkvæmdastjóri ÍSÍ, og Hafsteinn Pálsson, meðstjórnandi í framkvæmdastjórn ÍSÍ, voru sömuleiðis gestir þingsins. Öll fluttu þau ávörp.
Þingið var hefðbundið. Lög voru uppfærð, farið yfir lottóúthlutun, mótadagskrá og ársreikning sambandsins. Erla segir þingfulltrúa hafa verið sammála um flest. Lagabreytingar hafi tekið tíma en vel gengið þar sem Hafsteinn Pálsson hafi verið á meðal gesta. Hafsteinn situr í framkvæmdastjórn ÍSÍ og situr í laganefnd.
Viðurkenningar
Ragnar Kristinn Bragason hlaut starfsmerki UMFÍ. Hann hefur unnið ötullega að íþróttastarfi innan HSS frá unga aldri, sem í stjórn sambandsins í mörg ár, aukið samheldni og stuðlað að bættri heilsu og velferð Strandamanna. Hann var fyrst í stjórn hjá Umf. Hvöt en síðar verið í stjórn og frá stofnun Skíðafélags Strandamanna verið þjálfari. Þar hefur hann unnið af öllum mætti að uppbyggingu félagsins. Öll hans vinna hefur verið unnin í sjálfboðavinnu, stjórnarstörf, þjálfun, ferðalög með keppendur og allar framkvæmdir.
Óskar Torfason fékk silfurmerki ÍSÍ.
Íþróttamaður ársins 2024 var Stefán Þór Birkisson (f. 2008). Stefán hefur keppt í skíðagöngu á undanförnum árum með frábærum árangri sem skilaði honum m.a. keppnisrétti á Ólympíuleikum æskunnar. Hann náði mörgum verðlaunasætum á bikarmótum í flokki 15-16 ára og varð Íslandsmeistari i liðaspretti á Skíðamóti Íslands ásamt liðsfélaga sínum Jökli Ingimundi Hlynssyni.
Efnilegasti íþróttamaður ársins 2024 er Jökull Ingimundur Hlynsson (f. 2011). Jökull hefur æft skíðagöngu af mikilli samviskusemi og dugnaði. Hann var bikarmeistari í flokki 13-14 ára, þrefaldur Íslandsmeistari fyrir göngu með frjálsri aðferð, hefðbundinni aðferð og í liðaspretti með Stefáni Þóri Birkissyni. Jökull æfir einnig fótbolta og frjálsar íþróttir þar sem hann hefur sýnt mjög góðan árangur.
Hvatningaverðlaun HSS hlaut Matas Zalneravicius (f. 2009). Matas æfir skíðagöngu og hefur tekið miklum framförum á síðustu árum. Hann er mjög samviskusamur, stundar æfingar af miklum krafti og er mjög góð fyrirmynd fyrir unga iðkendur. Hann er á leið til Noregs í æfingaferð í skíðaskotfimi.
Hafði fengið allar viðurkenningar
Sérstaka viðurkenning hlaut Jóhann Björn Arngrímsson. Hann var að láta af störfum eftir að hafa verið meira og minna í stjórn HSS síðan árið 1991. Með elju, skuldbindingu og ósérhlífni hefur hann lagt sitt af mörkum í þágu HSS og íþróttahreyfingarinnar.
„Hann hefur fengið allar viðurkenningar sem hægt er að fá, Gullmerki ÍSÍ og UMFÍ og því vafðist þetta fyrir okkur. Við vildum gefa honum eitthvað sérstakt,“ segir hún. Lendingin varð að gefa honum einkar fallegan glerskjöld með Ægishjálminum, sem er merki HSS.
Erla bendir á að sama hvar þing HSS séu haldin þá sé ætíð tekið vel á móti fólki. Á þingi HSS í Trékyllisvík var boðið upp á gúllassúpu og berjaköku í eftirrétt.
„Héðan fór enginn svangur,“ segir hún.




