Fara á efnissvæði

Allar fréttir

Fréttir

Allar fréttir

04. nóvember 2026

Námskeið og vinnustofa um íþróttir fatlaðra

Laugardaginn 7. nóvember munu Háskólinn í Reykjavík, Íþróttasamband fatlaðra og Allir með verkefnið standa saman að námskeiði og vinnustofuna: „Allir með: Hvað getum við hin gert?“ Viðburðurinn fer fram í Háskólanum í Reykjavík og verður frá kl. 09.30-16:00 þann daginn. Boðið verður upp á veitingar á viðburðinum. Hægt að skrá sig hér.

04. nóvember 2026

Hjálpumst að við að deila gleðinni

Ný herferð Allir með var frumsýnd á dögunum. Herferðin samanstendur af sjónvarpsauglýsingum, myndböndum og öðru efni fyrir sjónvarp, útvarp og stafræna miðla. Vitundarvakningin náði hámarki um helgina þegar Allir með-leikarnir fóru fram í Laugardalshöll um helgina.

28. október 2026

Frístundastyrkir eiga að jafna tækifæri barna

Frístundastyrkir sveitarfélaga eiga að tryggja að öll börn geti tekið þátt í íþróttum og tómstundastarfi óháð efnahag og aðstæðum. Ný skýrsla um fátækt barna bendir til að styrkirnir, sem eru misháir eftir sveitarfélögum, dugi ekki alltaf til að tryggja jafnan aðgang. Niðurstöður skýrslunnar verða kynntar á málþingi um fátækt barna.

28. október 2026

Ertu búin/n að senda umsókn í Fræðslu- og verkefnasjóð?

Við minnum fólk á að enn er opið fyrir innsendingu umsókna í Fræðslu- og verkefnasjóð UMFÍ. En það fer að styttast í lokafrest. Umsóknarfrestur er til og með 1. nóvember eða fram að miðnætti á sunnudagskvöld. 

22. október 2026

Rakel ný í Skólabúðum UMFÍ

„Það er sannur heiður að fá þetta starf. Ég fór sjálf í skólabúðirnar á sínum tíma og það var ótrúlega gaman,“ segir Rakel Ósk Ólafsdóttir. Hún var á dögunum ráðin í starf verkefnastjóra Skólabúða UMFÍ á Reykjum í Hrútafirði. Hún kemur til starfa um áramótin.

15. október 2026

Farþjálfarinn kominn í loftið

Farþjálfarinn, nýtt verkefni Svæðisstöðva íþróttahéraða, er komið í loftið. Verkefnið tengir saman íþróttafélög og þjálfara sem bjóða upp á farþjálfun. UMFÍ hvetur íþróttahéruð og félög til að kynna verkefnið fyrir sínum þjálfurum.

13. október 2026

Skráðum iðkunum fjölgar um 5,8%

Íþróttastarf innan hreyfingarinnar heldur áfram að vaxa. Samkvæmt nýjum tölum ÍSÍ og UMFÍ fyrir starfsárið 2025 voru skráðar iðkanir 191.982, sem er fjölgun um 10.572 frá fyrra ári eða 5,8%. Tölurnar byggja á skýrslum 507 íþróttafélaga innan 25 íþróttahéraða og 34 sérsambanda.

12. október 2026

Hvetja stjórnvöld til að tryggja stuðning við svæðisstöðvar

Sambandsráðsfundur UMFÍ hvetur stjórnvöld til að tryggja áframhaldandi stuðning við uppbyggingu svæðisbundinnar stoðþjónustu við íþrótta- og ungmennastarf um land allt. Undir ályktunina rita stjórn UMFÍ og formenn íþróttahéraða.

12. október 2026

Mikilvægt að íþróttahreyfingin móti sameiginlega framtíðarsýn

Fádæma góður fjöldi mætti á 46. Sambandsráðsfund UMFÍ sem fram fór á Ísafirði á laugardag. Willum Þór Þórsson, forseti ÍSÍ, var á meðal gesta fundarins. Hann flutti ávarp og ræddi um fjármögnun og áskoranir og lagði áherslu á mikilvægi þess að íþróttahreyfingin móti sameiginlega framtíðarsýn.