Fara á efnissvæði

Keppnisgreinar

Hjólreiðar (utanvegahjólreiðar)

Almennar upplýsingar

Keppnisgrein á mótinu þar sem skráning er nauðsynleg.

Upplýsingar um tímasetningar (Monrad app). 

Keppendur 11 - 12 ára hjóla tvo hringi. Samtals er leiðin 2,6km. Sjá mynd af leið. 

Keppendur 13 - 14 ára hjóla 3 hringi. Samtals er leiðin 3,9 km. Sjá mynd af leið. 

Keppendur 15 - 17 ára hjóla 2 hringi af annarri leið. Hringurinn er 3,6km, samtals er leiðin 7,2km löng. Sjá mynd af leið. 

 

Aldurs- og kynjaflokkar

  • 11 - 12 ára stelpur / strákar
  • 13 - 14 ára stelpur / strákar
  • 15 - 18 ára stelpur / strákar

 

Keppnisfyrirkomulag / reglur

Keppendur mæta á keppnisstað ekki síðar en hálftíma fyrir ræsingu og fá öryggisvesti og tímaflögu.

  • Keppendur eru á eigin ábyrgð í keppninni.
  • Allir keppendur fá afhent öryggisvesti með númeri og verða að hjóla í því allan tímann með númer vel sýnilegt.
  • Keppendur skulu ávallt sýna ýtrustu varúðar þegar farið er framúr öðrum keppanda. 
  • Allir keppendur eiga að nota reiðhjólahjálm á meðan á keppni stendur. Skal hann passa vel á höfuð og sitja rétt á höfði. 
  • Reiðhjólið skal hafa fram- og aftur bremsur í lagi auk annars öryggisbúnaðar.
  • Hjóla þarf alla leiðina á sama hjóli. Keppandi má þó skipta um einstaka hluti, ss. dekk, slöngur og gjarðir ef á þarf að halda.
  • Utanaðkomandi aðstoð er ekki leyfð.
  • Öll venjuleg reiðhjól eru leyfileg í keppninni, en gæta skal að því að búnaður þess, s.s. standari, bögglaberi, bretti o.s.frv. séu vel fest, svo að búnaðurinn setji ekki aðra keppendur í hættu. 
  • Í utanvegakeppninni skal hjólið drifið af mannafli, en ekki raforku, eða hreyflum.
  • Keppandi má ekki með hegðun sinni stofna öðrum keppendum eða vegfarendum í hættu. Keppendur skulu ávallt sýna af sér íþróttamannslega hegðun.
  • Ef aftasti keppandi er hringaður af fremsta/stu keppenda/um ber honum að víkja við fyrsta örugga tækifæri. 
  • Við brot á ofangreindum reglum má vísa keppanda úr keppni. 

Brautarskoðun verður ekki formleg en brautin verður merkt daginn fyrir keppni.