Vilt þú vinna að eflingu íþróttastarfs á Vestfjörðum?
ÍSÍ og UMFÍ leita að einstaklingi með brennandi áhuga á íþróttastarfi í starf svæðisfulltrúa á Vestfjörðum. Tveir svæðisfulltrúar vinna að eflingu íþróttastarfs á átta svæðum um allt land. Á Vestfjörðum eru tveir og er nú starf annars þeirra laust til umsóknar.
Staðsetning starfsins er á sambandssvæði eftirfarandi íþróttahéraða: Héraðssambandi Bolungarvíkur (HSB), Héraðssambandinu Hrafna-Flóka (HHF), Héraðssambandi Strandamanna (HSS) og Héraðssambandi Vestfirðinga (HSV).
Starfsemi svæðisstöðva byggir á sjálfstæðum vinnubrögðum og drifkrafti þar sem samvinna, fagmennska og frumkvæði í sterkri liðsheild er grundvallaratriði.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Vinna við innleiðingu á stefnu og markmiðum íþróttahreyfingarinnar og stjórnvalda í íþróttamálum.
- Efling íþróttastarfs á svæðinu með áherslu á þátttöku barna og ungmenna.
- Auka tækifæri og þátttöku barna og ungmenna með stuðningsþarfir, af efnaminni heimilum og af erlendum tungumála- og menningarbakgrunn í íþróttastarfi.
- Skipulagning og stýring verkefna.
- Þróun og hugmyndavinna.
- Samvinna með íþróttahéruðunum á Vestfjörðum, aðildarfélögum og öðrum hagaðilum.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi er kostur.
- Reynsla og þekking af starfi innan íþróttahreyfingarinnar er kostur.
- Reynsla af verkefnastjórnun er kostur
- Skipulögð vinnubrögð og sjálfstæði í starfi
- Góðir samskiptahæfileikar og hæfni til að vinna í teymi
- Frumkvæði og drifkraftur
- Hreint sakavottorð í samræmi við ákvæði í íþróttalögum.
Frekari upplýsingar um Svæðisstöðvar íþróttahéraða er að finna á heimasíðu verkefnisins siu.is.
Umsóknarfrestur er til og með 1. júní nk.
Umsókn þarf að fylgja ferilskrá og rökstuðningur fyrir hæfni í starfið.
Ítarlegri upplýsingar um starfið veita framkvæmdastjórar ÍSÍ og UMFÍ
Andri Stefánsson (andri@isi.is) og Auður Inga Þorsteinsdóttir (audur@umfi.is)
Tekið er við öllum umsóknum um starfið á Alfreð.