Verkefnastjóri óskast í Skólabúðir UMFÍ
Skólabúðirnar að Reykjum, sem starfræktar eru af UMFÍ, óska eftir að ráða metnaðarfullan og skipulagðan verkefnastjóra til starfa. Verkefnastjóri ber ábyrgð á skipulagi og samskiptum við skóla vegna komu hópa, hefur umsjón með dagskrá búðanna og leigu til annarra hópa og gætir þess að aðstaða og öryggi séu í lagi fyrir starfsemina. Um er að ræða fjölbreytt og gefandi starf sem reynir á skipulagshæfni, frumkvæði og góða samskiptahæfni.
Helstu verkefni
- Öll samskipti við kennara þeirra hópa sem koma í Skólabúðirnar.
- Skipulag og röðun skóla fyrir næsta skólaár, þ.m.t. útsending og móttaka umsóknarforma.
- Yfirumsjón með sumar og helgarleigu, þ.m.t. bókanir og vaktaskipulag starfsfólks.
- Umsjón með tímum í dagskrá, í samstarfi við samstarfsfólk og yfirmann.
- Eftirlit með því að hús og sundlaug séu í lagi áður en hópar koma á staðinn.
- Árleg skýrslugjöf um starfsemi Skólabúðanna.
Hæfniskröfur
- Menntun og/eða reynsla sem nýtist í starfi, t.d. á sviði stjórnunar, verkefnisstjórnunar, uppeldis-, félags- eða tómstundastarfa.
- Reynsla af skipulagsvinnu og verkefnastjórnun er æskileg.
- Leiðtogahæfni og umbótamiðuð hugsun.
- Jákvætt hugarfar og framúrskarandi hæfni í samskiptum og teymisvinnu.
- Sjálfstæði í vinnubrögðum og hæfni til að taka ákvarðanir.
- Skipulagshæfni og nákvæmni, sérstaklega við röðun skóla og vaktaplön.
- Frumkvæði til að afla sér þekkingar og miðla henni áfram til samstarfsfólks.
Um Skólabúðirnar
Skólabúðirnar að Reykjum eru reknar af UMFÍ og taka árlega á móti fjölda skólahópa af öllu landinu. Markmið starfseminnar er að efla félagsþroska, sjálfstæði og samvinnu nemenda í gegnum fjölbreytta dagskrá og samveru utan hefðbundins skólaumhverfis.
Umsóknir
Umsóknarfrestur er til og með 15. september. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf í síðasta lagi 1.janúar 2026.
Ítarlegar upplýsingar og umsókn á Alfred.is.
Smella hér og fara á Alfred.is.
Nánari upplýsingar veita:
Sigurður Guðmundsson, forstöðumaður skólabúða UMFÍ
Sími: 861 3379
Netfang: siggi@umfi.is
Auður Inga Þorsteinsdóttir, framkvæmdastjóri UMFÍ
Netfang: audur@umfi.is
Öllum umsóknum verður svarað og fyllsta trúnaðar gætt.