08. júní 2026
Úthluta 2,8 milljónum úr Umhverfissjóði UMFÍ
UMFÍ hefur úthlutað rúmum 2,8 milljónum króna til níu verkefna úr Umhverfissjóði UMFÍ. Sjóðurinn styrkir umhverfisverkefni félaga eða einstaklinga innan íþrótta- og ungmennafélagshreyfingarinnar. Umsóknir í sjóðinn voru nokkuð færri nú en í fyrra, þegar sjóðurinn styrkti fimmtán verkefni um 6,2 milljónir króna.
Stjórn sjóðsins leggur áherslu á að veita styrki til umhverfisverkefna sem tengjast yngra fólki, stuðla að auknum tengslum við náttúru landsins og fela í sér nýjungar í umhverfisverndun og nýtingu.