Fara á efnissvæði
13. nóvember 2026

Ungt fólk hefur talað - hvað ætlum við að gera?

UMFÍ og ÍSÍ standa að útgáfu skýrslunnar Raddir ungs fólks. Verkefnið var styrkt af Erasmus+.

Vorið 2026 voru haldnir átta samráðsfundir víðs vegar um landið. Þar settust ungmenni á aldrinum 15–25 ára við sama borð og fulltrúar íþróttahreyfingarinnar, sveitarfélaga, skóla og stjórnvalda. Þau ræddu reynslu sína af íþrótta- og æskulýðsstarfi og hvað þarf að breytast.

Kostnaður, gæði þjálfunar, æfingatímar og ótímabær áhersla á afrek eru meðal þess sem brann á unga fólkinu. Nú er komið að okkur að hlusta og bregðast við.

Útgáfuhófið verður ekki hefðbundinn kynningarfundur heldur lifandi samtal þar sem unga fólkið sjálft er í forgrunni. Á dagskrá eru meðal annars:

  • helstu niðurstöður skýrslunnar
  • samtal við ungmenni sem tóku þátt í verkefninu
  • Ólafur Stefánsson segir frá upplifun sinni af verkefninu
  • pallborð fulltrúa ungs fólks, íþróttahreyfingarinnar, sveitarfélaga og stjórnvalda um spurninguna: Hvað ætlum við að gera við það sem unga fólkið hefur sagt okkur?

Hvar: Íþróttamiðstöðin í Laugardal, Engjavegur 6, 3. hæð, 104 Reykjavík
Hvenær: Fimmtudaginn 26. nóvember 2026 kl. 16:00–17:30
Streymi: Einnig verður hægt að fylgjast með í streymi. Hlekkur verður sendur skráðum þátttakendum.

Skráning fer fram hér fyrir 24. nóvember.

Við spurðum. Við hlustum. Við bregðumst við.