06. júlí 2026
Tímasetningar í frjálsum íþróttum liggja fyrir
Tímatafla fyrir keppni í frjálsum íþróttum á Unglingalandsmóti UMFÍ á Sauðárkróki um verslunarmannahelgina er nú tilbúin.
Þátttakendur og foreldar geta nú kynnt sér tímasetningar einstakra greina og skipulagt þátttöku sína á mótinu.
Hægt er að skoða tímatöfluna hér.
Athygli er vakin á því að breytingar geta orðið á tímatöflunni. Því er mikilvægt að fylgjast reglulega með upplýsingum á vefsíðu mótsins.
Hægt er að kynna sér allar upplýsingar um Unglingalandsmótið hér.