Fara á efnissvæði
04. ágúst 2026

Þrjú ný ráðin á svæðisstöðvar íþróttahreyfingar


Guðlaugur Arnarson hefur verið ráðinn í starf verkefnastjóra svæðisstöðva íþróttahéraðanna. Hann mun hafa umsjón með og vinna með öðrum að því að samræma starf þeirra átta svæðisstöðva sem eru um landið.

Á sama tíma eru tveir nýir starfsmenn svæðisstöðvanna komnir til starfa. Það eru þau Jóna Lind Kristjánsdóttir, svæðisfulltrúi á Vestfjörðum, og Jónas Halldór Friðriksson, sem er nýr svæðisfulltrúi á Norðurlandi eystra. Þau hefja öll störf í dag.

 

Mikilvægt fyrir alla landshluta

Guðlaugur Arnarsson hefur undanfarin ár starfað í stjórnunar- og þróunarhlutverkum með ábyrgð á verkefnastjórnun, stefnumótun, skipulagi og teymisvinnu. Þá hefur hann einnig starfað í íþróttahreyfingunni sem þjálfari til fjölda ára og mun sú reynsla nýtast vel í starfinu.
Guðlaugur er Húsvíkingur og vel kunnur handknattleiksmaður og þjálfari en hann lék mörg ár í efstu deild á Íslandi og erlendis um tíma.

„Þetta er áhugavert verkefni sem er gríðarlega mikilvægt fyrir alla landshluta og tilhlökkun hjá mér að hafa áhrif á góð verk sem þar eru unnin,“ segir hann.

 

Málsvarar íþróttahreyfingar

„Svæðisfulltrúar íþróttahéraðanna eru mikilvægir málsvarar íþróttahreyfingarinnar út á við, bæði gagnvart ríki og sveitarfélögum,“ segir Jónas Halldór Friðriksson, sem er nýr svæðisfulltrúi íþróttahéraðanna á Norðurlandi vestra. Hann kemur inn í stað Kristjáns Sturlusonar og verður staðsettur á Húsavík þar sem hann er búsettur. Á Norðurlandi eystra eru tveir svæðisfulltrúar, rétt eins og á hinum stöðunum sjö. Þóra Pétursdóttir er hinn svæðisfulltrúinn á Norðurlandi eystra.

Jónas er menntaður fjölmiðlafræðingur og trésmiður. Hann hefur verið þjálfari í íþróttahreyfingunni og undanfarin ár hefur hann starfað sem framkvæmdastjóri íþróttafélagsins Völsungs.

Jónas segir miklar breytingar hafa orðið á íþróttastarfi í gegnum árin.

„Ég hef unnið svo lengi í íþróttum og tekið eftir þeim. Það eru orðnar svo miklar kröfur á allt innan íþróttahreyfingarinnar, bæði frá foreldrum, ríki og sveitarfélögum um þá þjónustu sem íþróttafélögin veita. En íþróttahreyfingin á ekki sterka málsvara. Svæðisfulltrúarnir eru því góður stuðningur við íþróttafélögin í landinu.“

 

Hlakkar til að vinna fyrir félögin

„Ég er mjög spennt fyrir starfinu, lýðheilsu barna og hlakka til að vinna fyrir íþróttahéruð og félög og vinna með íþróttafélögunum á Vestfjörðum. Ég þekki það sem leikskólakennari og er þess vegna spennt að hefja störf,“ segir Jóna Lind, sem er menntaður leikskólakennari og hefur sem stjórnandi í leikskólum bæði hér og í Noregi lagt mikla áherslu á útinám og náttúruupplifun. Hún er nýr svæðisfulltrúi á Vestfjörðum og tekur við starfinu af Birnu Hannesdóttur og verður staðsett á Ísafirði ásamt Páli Janusi Þórðarsyni.

Jóna Lind hefur jafnframt verið formaður Skíðafélags Ísfirðinga, þjálfað þar gönguskíði og sinnt sjálfboðaliðastörfum fyrir íþróttahreyfinguna.

 

Um svæðisstöðvarnar

Svæðisstöðvar íþróttahéraðanna eru samstarfsverkefni ÍSÍ og UMFÍ með stuðningi Mennta- og barnamálaráðuneytis. Þær tóku til starfa haustið 2024. Þær eru átta talsins um allt land og eru tveir starfsmenn á hverri stöð. Hver svæðistöð styður við íþróttahéruð á sínu svæði og vinnur að því að innleiða stefnu íþróttahreyfingarinnar og ríkisins í íþróttamálum.
Ein af áherslum svæðisstöðvanna er að auka þátttöku barna og ungmenna í skipulögðu íþróttastarfi á Íslandi, sérstaklega börn með fatlanir, frá tekjulægri heimilum og þau sem hafa fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn.