Fara á efnissvæði
17. nóvember 2026

Þriðji umsóknarfrestur í Hvatasjóð

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Hvatasjóð íþróttahreyfingarinnar í þriðja sinn á árinu. Opið verður fyrir innsendingu umsókna í sjóðinn til miðnættis 12. desember.

Hvatasjóður íþróttahreyfingarinnar er samstarfssjóður ÍSÍ og UMFÍ með stuðningi frá mennta- og barnamálaráðuneytinu. Markmið sjóðsins er að styðja verkefni sem auka þátttöku barna og ungmenna í íþróttum og stuðla að auknum jöfnuði í íþróttastarfi. Sérstök áhersla er lögð á verkefni sem efla þátttöku barna með fötlun og barna frá tekjulægri heimilum.

Á síðasta ári hlutu 154 verkefni styrki úr sjóðnum að fjárhæð samtals 86,6 milljónir króna. Á þessu ári hafa farið fram tvær úthlutanir þar sem samtals 88 verkefni hlutu styrk upp á rúmar 40 milljónir króna.

 

Hver geta sótt um?

Eftirtaldir aðilar innan íþróttahreyfingarinnar geta sótt um styrk úr sjóðnum:

  • Íþróttahéruð
  • Íþróttafélög og/eða deildir þeirra
  • Sérsambönd í samstarfi við íþróttahéruð, félög og/eða deildir félaga

Styrkir eru veittir til verkefna sem:

  • Auka útbreiðslu og þátttöku barna og ungmenna í íþróttum.
  • Efla þátttöku barna með fötlun.
  • Efla þátttöku barna frá tekjulægri heimilum
  • Stuðla að auknum jöfnuði í íþróttastarfi

 

Við hvetjum öll félög og aðila innan íþróttahreyfingarinnar til að kynna sér sjóðinn og nýta tækifærið til að sækja um styrk fyrir verkefni sem stuðla að aukinni þátttöku barna og ungmenna í íþróttum. 

Mikilvægt er að umsóknir kallist á við reglur sjóðsins og verkefni hans.

Umsóknarfrestur er til og með 12. desember 2026.

 

Allt um Hvatasjóðinn hér