Fara á efnissvæði
12. maí 2026

Sveitarfélög greiða næstum 50 milljarða til íþrótta

Framlög til íþrótta- og æskulýðsmála eru stór útgjaldaliður sveitarfélaga. Framlögin eru misjöfn og dreifast misvel niður á íbúa sveitarfélaganna. Reykjavíkurborg greiðir hæsta framlag allra sveitarfélaga landsins eða 15,7 milljarða króna eða sem nemur 113 þúsund krónum á hvern borgarbúa. 

Framlag á hvern Grindvíking nemur 535.600 krónum.

Þetta er á meðal þess sem fram kemur í nýjasta tölublaði Skinfaxa, tímariti UMFÍ. Í blaðinu er ítarleg greining þar sem rýnt er í framlög allra sveitarfélaga til íþrótta- og æskulýðsmála. Bæði er skoðað hvað sveitarfélögin leggja í málaflokkinn og hvað upphæðin er há ef henni er deilt niður á íbúa hvers sveitarfélags. 

 

Há framlög

Á lista yfir þau tíu sveitarfélög þar sem íbúar fá hvað mest af framlögum sveitarfélaga þegar kemur að íþrótta- og æskulýðsmálum er Grindavík í fyrsta sæti með rúma hálfa milljón á hvern íbúa. Næst á eftir eru íbúar Strandabyggð með 280.609 krónur á íbúa. Í þriðja sæti eru íbúar Grímsnes- og Grafningshreppur, Vopnafjarðarhreppur, Fjarðabyggð, Kaldrananeshreppur, Fjallabyggð, Dalvíkurbyggð, Vesturbyggð og Reykhólahreppur. 

Framlög til íþrótta- og æskulýðsmála eru afar misjöfn eftir sveitarfélögum. Þetta er stór útgjaldaliður sveitarfélaga og ljóst að þau leggja mörg mikið til íþrótta- og æskulýðsmála í formi stuðnings og styrkja. 

 

Hæstu framlögin í Reykjavík

Hæstu framlögin árið 2024 voru í Reykjavík, en framlög sveitarfélagsins til málaflokksins nam 15,7 milljörðum króna árið 2024. Kópavogur var í öðru sæti með tæpa 4,5 milljarða króna og Garðabær með 3,1 milljarð króna í framlag til íþrótta- og æskulýðsmála. Akureyri og Hafnarfjarðarbær eru með í kringum 2,9 milljarða hvor. Af þeim tíu sveitarfélögum sem hæst eru á landsvísu koma þar á eftir Mosfellsbær, Reykjanesbær, Fjarðabyggð, Árborg og Akranes, en fjárframlag síðastnefnda sveitarfélagsins á lista yfir tíu stærstu framlögin námu rétt rúmum einum milljarði króna. 

Greiningin byggir á þeim fjárhagslegu upplýsingum sem fram koma í ársreikningum sveitarfélaga árið 2024 og eru meðal annars birtar í gagnagrunni Samtaka íslenskra sveitarfélaga. 

Með þessari aðferð kemur í ljós að fjölmennustu sveitarfélög landsins greiða alla jafna hæstu framlögin til íþróttastarfs. Þegar framlögum er skipt niður á íbúa kemur í ljós að fámennari sveitarfélög landsins greiða jafnframt mörg hver há framlög á hvern íbúa.

Fjárframlag til íþrótta og æskulýðsmála er misjafnt eftir sveitarfélögum en tölurnar benda til að fjárfesting í íþróttastarfi og íþróttamannvirkjum skili sér í hærri iðkendafjölda innan sveitarfélaga. Við vitum að ástundun í skipulögðu íþróttastarfi er besta forvörnin og því skilar fjárfesting í íþróttum sér í öflugu og heilbrigðu samfélagi. Fjárfesting í íþróttum skiptir þess vegna miklu máli.

 

Þú getur smellt á myndina hér að neðan til að lesa greininguna alla.