Fara á efnissvæði
04. september 2026

Skráning gengur vel á Ungt fólk og lýðheilsu - enn hægt að tryggja sér sæti

Ungmennaráð UMFÍ stendur fyrir ráðstefnunni Ungt fólk og lýðheilsa dagana 18.–20. september næstkomandi í Skólabúðum UMFÍ á Reykjum í Hrútafirði, undir yfirskriftinni Blómstrum. Styrkjumst. Tengjumst. Skráningar hafa gengið vel það sem af er, en enn er laust pláss fyrir þau sem vilja tryggja sér sæti.

Frábært tækifæri til að verðlauna virkt ungt fólk

Ráðstefnan er ekki síst kjörið tækifæri fyrir íþróttahéruð og félög til að verðlauna ungt fólk sem hefur staðið sig vel - hvort sem er í sjálfboðaliðastarfi, sem þjálfarar, fyrirliðar eða sem jákvæðar fyrirmyndir innan félagsins. Að senda ungmenni á ráðstefnuna er einföld en um leið eftirminnileg leið til að sýna þeim að framlag þeirra sé metið að verðleikum.

Að kynnast jafningjum af öllu landinu

Það er alltaf gott og gaman að fá tækifæri til að kynnast ungmennum af öðrum landssvæðum og heyra hvaða áskoranir og tækifæri þau búa við í sínu nærumhverfi. Á ráðstefnunni koma saman ungmenni víðs vegar af landinu, sem gefur þátttakendum nýja sýn á eigin aðstæður og styrkir um leið tengslanetið innan íþrótta- og ungmennafélagshreyfingarinnar.

Ávinningur fyrir þátttakendur

Dagskráin samanstendur af vinnustofum, samtali og samveru um sjálfsmynd, lífsstíl, skjánotkun auk fyrirlestra og kvöldvöku. Á meðal gesta eru Ólafur Stefánsson og Skúli Bragi Geirdal. Þátttaka á viðburðinum eflir þátttakendur persónulega - hvað varðar sjálfsmynd, tengsl við aðra og almennan þroska - og skilar sér oft áfram inn í félagsstarfið heima fyrir.

Skráning opin til 8. september

Ráðstefnan er fyrir ungt fólk á aldrinum 15–25 ára. Þátttökugjald er 15.000 kr. og er þá innifalin gisting í tvær nætur, allar máltíðir, hressing og ráðstefnugögn, auk þess sem í boði eru rútuferðir frá Reykjavík, Akureyri og Egilsstöðum. Viðburðurinn er alfarið vímuefnalaus og er hann styrktur af Erasmus+.

Fjöldi þátttakenda er takmarkaður og skráning er opin til 8. september 2026, eða þar til uppselt er. Allar nánari upplýsingar er að finna á eftirfarandi slóðum. 

Upplýsingar á heimasíðu UMFÍ.

Skráningahlekkur

Viðburðurinn á Facebook.