Fara á efnissvæði
25. ágúst 2026

Skemmtifolfmót Ungmennaráðs UMFÍ

Mótið fer fram á frisbee-golf vellinum í Laugardal og hefst klukkan 18:00. Um er að ræða óformlegt og skemmtilegt mót þar sem keppt er í tveggja manna liðum eftir Texas Scramble-fyrirkomulagi - báðir liðsmenn kasta og svo er betra kastið valið áður en haldið er áfram frá þeim stað.

Mótið er öllum ungmennum á aldrinum 15-25 ára opið og kostar ekkert að taka þátt. Um er að ræða vímulausan viðburð. Þátttakendur eru hvattir til að taka með sér diska ef þeir eiga, en einnig verður í boði að fá lánaða diska á staðnum.

Hvað: Skemmtifolfmót Ungmennaráðs UMFÍ.
Hvenær: Fimmtudaginn 27. ágúst kl. 18:00.
Hvar: Frisbee-golf völlurinn í Laugardal.
Fyrir hverja: Ungmenni á aldrinum 15-25 ára.
Verð: Frítt. 
Fyrirkomulag: Tveggja manna lið, Texas Scramble.

Skráning fer fram hér.

Ungmennaráð UMFÍ hlakkar til að sjá ykkur!